Til styrktar ungmennum
Hvernig get ég hjálpað vinum mínum og fjölskyldu?
Til styrktar ungmennum, mars 2026


Hvernig get ég hjálpað vinum mínum og fjölskyldu?

Sean R. Dixon

Sem upprisin vera, heimsótti Jesús Kristur Nefítana og bauð þeim að gera nokkuð sem var fyrirmynd að því sem við, sem nútíma lærisveinar hans, getum líka gert. Hann sagði:

„Eru nokkrir sjúkir yðar á meðal? … Eru einhverjir lamaðir, blindir … eða þjáðir á einhvern hátt? Færið þá hingað, og ég mun gjöra þá heila, því að ég hef samúð með yður“ (3. Nefí 17:7).

Gætið að því hvernig þessir fornu lærisveinar brugðust við.

„Allur mannfjöldinn … [leiddi] fram sína sjúku … og alla þá, sem þjáðir voru á einhvern hátt. Og hann læknaði þá“ (3. Nefí 17:9).

Ég veit að Jesús Kristur lifir og að hann er enn hinn ljúfi læknir. Hann mun lækna vini okkar og fjölskyldu á sinn hátt þegar við bregðumst við boði hans um að koma með þau til hans.

„Og allir, bæði þeir, sem læknast höfðu, og þeir, sem heilir voru, lutu að fótum hans og tilbáðu hann“ (3. Nefí 17:10).

Við skulum öll koma til Krists er við komum með aðra til hans á páskum.

Kærleikskveðjur,

Sean R. Dixon

annar ráðgjafi í aðalforsætisráði Piltafélagsins