Til styrktar ungmennum
Þú þarft ekki að vera atvinnumaður
Til styrktar ungmennum, mars 2026


Þú þarft ekki að vera atvinnumaður

„Hæfileikaríkir“ eða ekki, allir geta fengið innblástur.

ungt fólk sýnir hæfileika sína

Myndskreyting: Getty Images

Flest höfum við kynnst miklu listaverki eða skemmtun og hugsað: „Ég vildi að ég gæti þetta, en ég er ekki nógu hæfileikarík/ur.“

Mörg af uppáhaldsverkunum þínum voru örugglega gerð af fólki með mikla náttúrulega hæfileika. Það kæmi ykkur hins vegar á óvart hversu oft það var bara venjuleg manneskja með innblásna hugmynd.

„Er páskar ganga‘ í garð,“ einn af nýju sálmunum sem kirkjan gaf nýlega út, saminn af Síðari daga heilögum að nafni Larry A. Hiller. Hann var atvinnurithöfundur og ritstjóri (á eftirlaunum núna), en ekki lagahöfundur. Hann var hvorki góður söngvari né tónlistarmaður.

Hann var bara einhver sem hafði unun af tónlist og fékk innblásna hugmynd.

Þegar bróðir Hiller þjónaði sem deildarkórstjóri fyrir mörgum árum, reyndi hann fyrir sér að semja texta við gamalt lag sem hann uppgötvaði. Hann naut þessarar upplifunar og spurði vinkonu sína sem starfaði í kirkjunni hvort hún vissi um fleiri lög sem þyrftu á nýjum textum að halda. Hún benti honum á sálmalag samið á 19. öldinni.

Bróðir Hiller sagði: „Ég settist niður með þessa tónlist og þessi orð komu strax upp í huga minn: ‚Heilagir, gleðjist nú.‘ Þaðan skynjaði ég hinn almenna texta og það sem hann þurfti að vera – fagnaðarsöngur yfir frelsaranum.“

Þessi sálmur var gefinn út í Ensign árið 2012. Hann var fjögur vers og fjallaði um friðþægingu Jesú Krists. „Það var mikil áhersla á: ‚Þú munt sjá ástvini þína aftur; það er upprisa,‘“ sagði bróðir Hiller. Þegar kirkjan kallaði eftir nýjum sálmum, var bróðir Hiller beðinn um að leggja sérstaka áherslu á páskana í texta sínum.

Eftir að hafa breytt miklu í textanum – þó að upphafsorðin, „heilagir, gleðjist nú“, hafi staðið eftir – hafði bróðir Hiller nú þriggja versa sálm sem nefndist „Er páskar ganga‘ í garð“. Þið gætuð sungið hann á sakramentissamkomu þessa páskahátíð!

Fann bróðir Hiller fyrir innblæstri þegar hann ritaði textann?

„Það er auðmýkjandi að segja það,“ sagði hann. „En já. Það hafa komið tímar þar sem ég fann orðaflæðið koma í huga minn. Það vekur með mér ánægju og hljóða gleði. Og ég get oft fundið bergmál af þeirri gleði þegar ég les eitthvað aftur, sem snerti mig sérstaklega á þeim tíma. Það eitt og sér endurvekur þessar tilfinningar vitnisburðar. Þetta er næstum eins og að endurlifa upplifunina.“

Fólk mun eflaust elska sálminn, en það hljómar eins og sá sem fékk mest út úr honum var (trommusláttur) … sá sem samdi hann! Að nota hæfileika okkar og innblásnar hugmyndir, blessar ekki bara aðra – það blessar okkur líka.