Til styrktar ungmennum
Páskum fagnað
Til styrktar ungmennum, mars 2026


Páskum fagnað

Á sama tíma og við höfum í huga um hvern málið snýst

6 páskahefðir víða að úr heiminum og hvernig þær geta hjálpað okkur að hafa Jesú Krist í huga.

Páskaegg

Myndskreyting: Judy Bloomfield

Hefð

Tenging við Krist

1. Páskaegg

Egg, egg, egg. Um allan heim eru páskaegg skreytt, að þeim leitað, þeim rúllað, þau brotin og borðuð. Í Þýskalandi og Austurríki eru páskaegg hengd á tré (Ostereierbaum). Í Mexíkó eru egg holuð út og þau fyllt með pappírsskrauti (cascarones) og síðan brotin yfir höfði einhvers.

Óneitanlega nota margir egg til að halda páskana hátíðlega, án þess að einblína á frelsarann. Það er okkar að einblína á frelsarann í páskahefðum okkar. Egg geta verið tákn um nýtt líf, sem tenging við upprisu. Rauður litur hefur verið notaður í sumum menningarheimum sem tákn um fórn frelsarans. Þegar egg er brotið getur skurnin minnt okkur á tómu gröfina og hinn upprisna frelsara. Ef þið hafið ekki tengt páskahefðir ykkar við hann, þá er núna tíminn til að byrja!

2. Páskaeldar

Að hafa bál er algeng páskahefð, sérstaklega í Þýskalandi, Hollandi, Króatíu og Finnlandi.

eldur

Eldur á páskum getur minnt okkur á að líta til frelsarans, sem færir heiminum ljós og hlýju og er í raun sjálfur ljós heimsins (sjá Jóhannes 8:12).

3. Sérstök matvæli

Víða um heim um páskana er táknrænt að borða tvennt aftur og aftur: lambakjöt og brauð.

brauð og lambakótiletta

Lambið getur bent á Guðs lambið – frelsarann sjálfan. Brauðið getur minnt okkur á Jesú Krist, sem er brauð lífsins (sjá Jóhannes 6:35).

4. Vefja saman pálmum

Í sumum löndum, eins og Ítalíu, Spáni, Filippseyjum, Mexíkó, Egyptalandi og Eþíópíu, fléttar fólk pálmalauf eða aðrar plöntur á pálmasunnudegi.

pálmagreinar

Pálmasunnudagur er sunnudagurinn fyrir páska og heldur upp á sigurinnreið Jesú í Jerúsalem, þegar fólk breiddi út pálmalauf frammi fyrir honum.

5. Flugdrekaflug

Á páskunum á Bermúda flýgur fólk marglitum flugdrekum!

flugdreki

Þessi hefð er skemmtileg áminning um upprisu frelsarans og hvernig hann reis upp til himna í kjölfarið.

6. Tilbeiðsla í kirkjunni

Gleymið ekki einni af mikilvægustu páskavenjunum – að fara í kirkju! Við förum í kirkju á páskasunnudegi til að meðtaka sakramentið og minnast frelsarans. (Ef aðalráðstefna er á páskum, getum við minnst hans með því að hlusta á hana – meðtekið síðan sakramentið aftur næstu viku á eftir.)

sakramentisbrauð og vatn

Þegar við höldum sáttmála okkar og endurnýjum þá með sakramentinu, erum við blessuð með því að hafa andann ætíð með okkur. Það getur hjálpað okkur að tengjast frelsaranum á páskum sem og aðra daga.

Ungmenni taka þátt: Persónulegar páskahefðir

„Ég gef trúboðunum í deildinni minni súkkulaðipáskaegg.“

Jennyfer M., 23 ára, Pernambuco, Brasilíu

„Fjölskyldan okkar líkti eftir síðustu kvöldmáltíðinni og við reyndum að hafa hana eins hefðbundna og hægt var.“

Alice F., 16 ára, Utah, Bandaríkjunum

„Ég og fjölskylda mín förum í kirkjugarð, syngjum sálma saman og gefum vitnisburð okkar.“

Rachel G., 19 ára, Virginíu, Bandaríkjunum

„Ég fór í musterið um páskahelgina.“

Avery A., 17 ára, Nevada, Bandaríkjunum

„Ég las guðspjöllin og sögu lífs Jesú! Það er mikil gleði að læra um hann á páskunum.“

Esteban A., 15 ára, San José, Kosta Ríka

„Í Frönsku Pólýnesíu héldum við páskatónleika með ungmennum ýmissa trúarbragða. Í gegnum storma og sjávarföll gerði Drottinn þetta að nótt kraftaverka, gleði og einingar.“

Tehina C.T., 24 ára, Tupuai, Frönsku Pólýnesíu

„Á þessu ári lagði ég áherslu á að læra um það sem Kristur gerði í dymbilvikunni.“

Maddysen R., 18 ára, Utah, Bandaríkjunum