Til styrktar ungmennum
Seldur til Egyptalands
Til styrktar ungmennum, mars 2026


Sögur úr Gamla testamentinu

1. Mósebók 37–47

Seldur til Egyptalands

Jósef

Seldur til Egyptalands

Hala niður PDF-skjali

Myndskreyting: Katy Dockrill

Saga hans

Kyrtillinn

Jósef var eftirlætisbarn föður síns, Jakobs. Jakob saumaði fyrir hann sérstakan kyrtil. Bræður Jósefs voru afbrýðisamir. (Ekki bætti úr skák að Jósef dreymdi draum, innblásinn af Guði, um að hann myndi dag einn ríkja yfir þeim.)

Svikin

Bræður Jósefs seldu hann fólki á leið til Egyptalands og sögðu Jakob að Jósef væri látinn. Í Egyptalandi var Jósef þræll og varpað í fangelsi fyrir glæp sem hann framdi ekki. Hann var alltaf trúr Guði og Drottinn var með honum og blessaði hann.

Hungursneyðin

Að endingu túlkaði Jósef draum faraós og gaf honum ráð til að búa sig undir aðsteðjandi hungursneyð. Faraó gerði Jósef að ráðsherra í Egyptalandi. Bræður hans komu fljótlega til Egyptalands til að kaupa korn. Þeir vissu ekki að þeir voru að biðja um hjálp frá bróður sem þeir höfðu selt!

Frelsunin

Jósef opinberaði sig bræðrum sínum loks og bauð þeim mat og húsaskjól í Egyptalandi. Hann fyrirgaf þeim og bjargaði fjölskyldu sinni. Þessir sömu bræður urðu að 12 ættkvíslum Ísraels.

Sagan ykkar

Þið gætuð, líkt og Jósef, upplifað ykkur svikin eða særð. Gjörðir annarra geta haft miklar afleiðingar. Ef þið aftur á móti eruð trú Guði og reynið að fyrirgefa öðrum, hljótið þið styrk og blessun.