Til styrktar ungmennum
Tengjast
Til styrktar ungmennum, mars 2026


Tengjast

Fabio P.

16 ára, Salzburg, Austurríki

piltur

Ljósmynd: Ashlee Larsen

Á páskunum komum við yfirleitt saman með allri fjölskyldunni, um 30 til 40 manns. Þegar ég var yngri hlakkaði ég til körfunnar með eggjunum og súkkulaðinu. Og það var mjög gaman. Nú einbeiti ég mér meira að merkingu páskanna.

Í kirkju tölum við oft um páskana. Í ritningarnámi mínu legg ég líka meiri áherslu á það sem gerðist á páskunum. Ég hugsa um Jesú Krist og það sem hann gerði fyrir okkur og finn sterkari tengingu við hann.

Eftirlætis ritningargreinin mín er 3. Nefí 15:9. Þar segir: „Sjá, ég er lögmálið og ljósið. Lítið til mín og standið stöðugir allt til enda, og þér skuluð lifa. Því að þeim, sem stöðugur stendur allt til enda, mun ég gefa eilíft líf.“

Ef ég held áfram að keppa að því að velja hið rétta í lífi mínu, eins og ég er að gera einmitt núna, get ég snúið aftur til hans og öðlast eilíft líf.