Spurningar og svör
„Hvernig get ég einblínt meira á frelsarann á páskum?“
„Ég legg mitt af mörkum til að einblína á frelsarann með því að hlusta á upplyftandi tónlist, hugsa meira um hann, líta til hans í daglegu lífi og biðja mikið. Ég nýt þess líka að lesa ritningarnar til að læra um upprisu hans og vonina sem hún færir mér.“
Maxwell R., 16 ára, Missouri, Bandaríkjunum
„Finnið ritningarvers til að lesa saman sem fjölskylda, daglega eða vikulega, til að minna ykkur á þennan mikilvæga tíma í lífi frelsarans. Leitið tækifæra dag hvern til að þjóna öðrum á kristilegan hátt.“
Ahonima A., 15 ára, Tongatapu, Tonga
„Ég get einblínt meira á Krist með því að deila einhverju um hann á netinu daglega.“
Caleb F., 17 ára, Arisóna, Bandaríkjunum
„Lesið ritningargreinarnar sem lýsa lífi hans, sérstaklega síðustu vikuna fyrir krossfestingu hans. Eftirlætisfrásögnin mín er Matteus 21–27. Lestur ritninganna hjálpar mér að komast nær frelsara mínum og skilja betur friðþægingu hans.“
Grace M., 15 ára, Alberta, Kanada
„Páskar og friðþæging Jesú Krists minna mig á nýtt og ferskt upphaf. Að uppfæra daglegar venjur mínar og endurmeta markmið mín gefur mér tækifæri til að einbeita mér aftur að Kristi og minnast hans af meiri ásetningi á þessum sérstaka tíma ársins.“
Lilly H., 17 ára, Kaliforníu, Bandaríkjunum