Frá ungmennum
Ég get boðið öllum
Myndskreyting: Katelyn Budge
Það gerir mig kvíðafullan að deila fagnaðarerindinu með vinum mínum en einnig hamingjusaman og spenntan. Á hverju ári förum við í páskaeggjaleit heima hjá okkur. Við bjóðum trúboðunum og vinum okkar sem ekki eru meðlimir kirkjunnar.
Ég býð líka vinum mínum oft að koma í kirkju eða á ungmennaviðburði. Einungis einn vinur hefur mætt á viðburð og enginn hefur komið í kirkju – enn þá. Ég býð þeim þó stöðugt svo þau geti komist nær Guði og dvalið á ný hjá honum. Það veitir mér gleði að þjóna öðrum með því að bjóða þeim að koma til Krists.
Jesús Kristur er frelsari okkar og lausnari, Guðs lambið og góði hirðirinn. Ég veit að við munum geta lifað með Guði aftur ef við fylgjum honum.
Akoni C., 13 ára, Havaí, Bandaríkjunum
Hefur gaman af því að stunda íþróttir, brautarhlaup og að smíða hluti.