Kjarni málsins
Hvað vitum við um Rebekku eiginkonu Ísaks?
Rebekka við brunninn, eftir Michael Deas
Hér er nokkuð sem við vitum um Rebekku:
Hún var dyggðug og falleg. Sjá 1. Mósebók 24:16.
Hún var vingjarnleg og kurteis. Þjónn Abrahams ferðaðist langt til að finna einhvern til að ganga í hjónaband í sáttmála við Ísak son Abrahams. Hann nam staðar við brunninn og bað þess að konan sem myndi ausa vatn fyrir bæði hann og úlfaldana hans tíu yrði sú sem Guð hafði tilnefnt til að giftast Ísak. Rebekka gerði svo. (Sjá 1. Mósebók 24:1–28.)
Hún hafði mikla trú. Þegar Rebekka var spurð daginn eftir hvort hún vildi fara aftur með þjóni Abrahams, kvaðst hún gera það. Hún trúði á Drottin, sem hafði leitt hann. (Sjá 1. Mósebók 24:50–58.) Hún hélt voninni í sáttmálum sínum eftir 20 ára barnleysi (sjá 1. Mósebók 25:20, 26).
Hún hlaut opinberun fyrir fjölskyldu sína. Þegar Rebekka var þunguð af tvíburum, sagði Drottinn við hana: „Hinn eldri mun þjóna hinum yngri“ (1. Mósebók 25:23). Hún sá síðar hvernig eldri tvíburabróðirinn, Esaú, hafnaði leiðsögn Drottins og vanvirti frumburðarrétt sinn og hvernig yngri tvíburabróðirinn, Jakob, var trúfastur. Hún hjálpaði Jakobi að öðlast frumburðarréttinn og varaði hann við því að bróðir hans vildi drepa hann. (Sjá 1. Mósebók 27.)