Frá ungmennum
Fögnum frelsaranum
Myndskreyting: Katelyn Budge
Mér finnast páskarnir skemmtilegir. Ég elska að koma saman sem fjölskylda til að fagna upprisu Jesú Krists frá dauðum. Að verja tíma með fjölskyldu minni er alltaf eitthvað sem ég nýt en að hugsa um allt það sem frelsarinn hefur gert fyrir okkur er jafnvel enn dásamlegra.
Þegar við undirbúum okkur fyrir páskaeggjaleitina, setjum við ritningargreinar inn í eggin. Við lesum ritningarnar þegar við finnum þær í leitinni. Einu sinni gerðum við litla gröf. Við skráðum síðan allar áhyggjur okkar, settum þær í gröfina og settum stein fyrir framan gröfina. Daginn eftir höfðu allir blaðsneplarnir verið fjarlægðir – til að minna okkur á hvernig frelsarinn getur hjálpað okkur með áhyggjurnar.
Jesús Kristur er minn fullkomni, himneski vinur. Ég veit að hann mun ávallt skilja mig, sama hvað.
Zoi S., 17 ára, Bæjaralandi, Þýskalandi
Nýtur þess að dansa, spila tennis og vera virk.