Landslagið á vegi hans
Vegur frelsarans er ef til vill ekki alltaf auðveldur en hann mun ganga með okkur og leiða okkur þangað sem við viljum fara.
Myndskreyting: Yukai Du
Yfirleitt veljum við veg vegna þess að hann leiðir okkur þangað sem við viljum fara. En það felst meira í veginum en bara áfangastaðurinn. Það er líka landslagið – þess konar jarðvegur sem vegurinn fer með okkur um.
Jesús Kristur býður okkur að ganga með sér (sjá HDP Móse 6:34; Míka 6:8; 1. Jóhannesarbréf 2:6; Kenning og sáttmálar 19:23). Vegurinn sem hann býður okkur að ganga á er sáttmálsvegurinn – vegurinn til friðar, gleði og eilífs lífs með himneskum föður okkar – þar sem við viljum vera.
En hvernig er þessi leið? Hvers konar landsvæði förum við yfir þegar við göngum með frelsaranum?
Mjór
„Hve þröngt er það hlið og mjór sá vegur er liggur til lífsins“ (Matteus 7:14).
Þegar vegur hans virðist takmarkandi, þá er ástæða fyrir því. Það að vegurinn sé mjór, kemur í veg fyrir að þið stígið þangað sem þið gætuð særst eða týnst.
Beinn
„Vegir hans eru beinir“ (Alma 37:12).
Vegur hans er ekki hlykkjóttur. Hann er beinasta leiðin að markmiði okkar um eilíft líf. Hann víkur ekki frá því. En stundum gerum við það. Vegna friðþægingar frelsarans, getum við iðrast hratt og snúið aftur á veg hans.
Bratt og stundum grýtt
„Leiðin [heim til Guðs] er brött og stundum torsótt“ (Henry B. Eyring forseti, í Æðsta forsætisráðinu, „Hjálpa þeim á leið þeirra heim,“ aðalráðstefna, apríl 2010).
Að ganga upp brekku getur verið erfitt og þið gætuð kannski ekki séð yfir fjallsbrúnina sem þið eruð að klífa. Frelsarinn styrkir og hvetur ykkur er þið reynið að gera þá erfiðu hluti sem hann býður ykkur að gera.
Bjargið á vegi ykkar getur verið öðruvísi en bjarg annarra. Áskoranir ykkar og aðstæður eru ykkar eigin. Frelsarinn er þó besti ferðafélaginn og mun hjálpa ykkur að takast á við hverja hindrun.
Vel upplýst
„Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum“ (Sálmarnir 119:105). „[Gangið] í ljósinu, eins og hann sjálfur er í ljósinu“ (1. Jóhannesarbréf 1:7).
Þegar vegur ykkar myrkvast, getur frelsarinn lýst veg ykkar, jafnvel þó það nægi aðeins fyrir eitt skref og síðan annað á leið ykkar heim til himnesks föður.
Örugg
„Þótt ég fari um dimman dal óttast ég ekkert illt því að þú ert hjá mér“ (Sálmarnir 23:4).
Sama hversu ógnvekjandi, átakanlegur eða erfiður vegur ykkar virðist vera, þá getið fundið frið í þeirri vitneskju að þegar þið gangið með Jesú Kristi, mun hann ganga með ykkur og leiða ykkur í öryggið, aftur til himnesks föður.