Frá ungmennum
Læra eftir að hafa misst ömmu
Myndskreyting: Katelyn Budge
Að missa ömmu var áskorun fyrir mig. Við vorum mjög nánar. Ég var mjög sorgmædd. Mér fannst vonin sem ég þurfti á að halda vera horfin.
Áður en hún dó, var ég ekki mjög sterk í fagnaðarerindi Jesú Krists. Ég treysti á vitnisburði annarra. Á þessari fyrstu sorgarviku fór ég svo í trúarskóla þar sem kennari kenndi um friðþægingu Jesú Krists og sáluhjálparáætlun föðurins. Ég áttaði mig á því að ég gæti séð ömmu mína aftur. Við getum sameinast aftur í næsta lífi með helgiathöfnum musterisins.
Þetta styrkti vitnisburð minn. Ég tók að einbeita mér meira að frelsara mínum Jesú Kristi og að læra meira um fagnaðarerindi hans. Nú leita ég svara gegnum ritningarnar og Kom, fylg mér. Ég nýt þess að hlusta á ráðstefnuræður, einkum frá spámanninum, Russell M. Nelson forseta. Þegar ég hlusta á ræður, reiði mig á ritningarnar, bið og ígrunda og bið um heilagan anda, getur vitnisburður minn orðið sterkur.
Trúarskólinn hefur líka hjálpað mér að læra um og keppa að því að vera eins og frelsari okkar, Jesús Kristur, er ég hef breytt í trú, litið á hlutina frá eilífu sjónarhorni og leitað frekari þekkingar í gegnum útvaldar heimildir.
Treystið himneskum föður og Jesús Kristi. Treystið ekki einungis eigin þekkingu, heldur þeim. Þeir geta liðsinnt og leiðbeint okkur í gegnum hvaða raunir eða mótlæti sem á vegi okkar verða.
Suzanne Q., 17 ára, Central Division, Fídjíeyjum
Elskar að teikna, föndra, mála, hanna, læra um sögu og spila körfubolta.