Til styrktar ungmennum
Nýtt ár
Til styrktar ungmennum, janúar 2026


Nýtt ár

Emily Belle Freeman

Það er janúar! Nýtt ár. Tími fyrir nýtt upphaf.

Kannski setjið þið ykkur markmið fyrir þetta nýja ár. Sumir velja sér orð sem stendur fyrir áform þeirra fyrir komandi ár. Á þessu ári mun ungt fólk um allan heim einbeita sér að sama versi ritninganna: HDP Móse 6:34, „Gakk með mér.“ Þetta var boð gefið spámanninum Enok.

Þegar Enok ferðaðist um landið, hvíldi andi Guðs yfir honum. Svo talaði Drottinn við hann. Hann kenndi honum um sæluáætlun sína, sem myndi gefa lífinu tilgang og merkingu. Þegar Drottinn lauk við að lýsa áætlun sinni, bauð hann Enok: „Gakk með mér.“

Þegar þið ferðist gegnum þetta nýja ár munið þið ef til vill finna ykkur sjálf í leit að hamingju, tilgangi og merkingu. Þið getið lært af sögu Enoks og boðið Drottni að taka þátt í ferðalagi ykkar þetta árið.

Þið gætuð valið að ganga með honum. Þegar þið gerið það, bíða blessanir.

Þetta verður gott ár.

Kærleikskveðjur,

Emily Belle Freeman

aðalforseti Stúlknafélagsins