Til styrktar ungmennum
Gakk með mér
Til styrktar ungmennum, janúar 2026


Þema ungmenna 2026

Gakk með mér

Þema ungmenna 2026 mun minna ykkur á að þegar þið haldið ykkur nálægt Guði, þá gengur hann með ykkur – alltaf.

Aðalforsætisráð Stúlknafélagsins

Frá vinstri til hægri: Tamara W. Runia, fyrsti ráðgjafi, Emily Belle Freeman, forseti og Andrea Muñoz Spannaus, annar ráðgjafi

Þið eruð ekki ein

Hafið þið einhvern tíma verið beðin um að gera eitthvað sem þið hélduð að þið gætuð ekki? Kannski fannst ykkur þið ekki nógu sterk eða klár eða höfðuð áhyggjur af því að aðrir myndu hlæja að ykkur og gagnrýna ykkur. Ef ykkur hefur einhvern tíma liðið þannig, þá eruð þið ekki ein um það.

Fyrir þúsundum ára var maður að nafni Enok. Guð bað Enok að boða fólkinu – einhverju því ranglátasta sem jörðin hafði nokkru sinni séð – iðrun.

Enok taldi sig ekki geta þetta. Hann sagði Guði að hann væri of ungur, hann ætti ekki nógu marga vini og væri ekki nógu gáfaður (sjá HDP Móse 6:31).

Guð gaf Enok þó loforð. Hann sagði við hræddan manninn: „Far og gjör eins og ég hef boðið þér“ og „fjöllin munu hörfa undan þér og fljótin breyta farvegi sínum. Og þú munt vera í mér og ég í þér. Gakk þess vegna með mér“ (HDP Móse 6:32, 34).

„Gakk með mér.“ Þetta er einfalt, fallegt boð.

Guð lofaði Enok að ef hann yrði nægilega hugrakkur til að byrja, þá myndi Guð vera með honum í hverju skrefi leiðarinnar. Guð myndi gera Enok máttugan og styrkja hann til að gera meira og hjálpa honum að verða meira en hann gæti nokkurn tímann ímyndað sér.

Eitt af mörgum nöfnum frelsarans er Emmanúel eða „Guð með oss“ (Matteus 1:23). Það er í nafni Drottins og eðli að ganga með okkur. Valið er okkar – munum við líka ganga með honum?

Nú á dögum lítum við til Enoks sem manns trúar og mikils spámanns og leiðtoga. En á undan spámanninum Enok var þó yngri Enok, sem efaðist um sjálfan sig, en kaus samt að ganga með Guði.

Þegar lífið er erfitt, þegar ykkur finnst þið ekki vera fullgóð, munið þá loforð Drottins til Enoks og ykkar. Hann mun ganga með ykkur. Hann mun ekki skilja ykkur ein eftir, ekki eitt einasta skref.

Emmanúel. Guð með oss. Guð með ykkur!

Aðalforsætisráð Stúlknafélagsins

Aðalforsætisráð Piltafélagsins

Frá vinstri til hægri: David J. Wunderli, fyrsti ráðgjafi, Timothy L. Farnes, forseti og Sean R. Dixon, annar ráðgjafi

Með hans hjálp, getið þið gert allt.

Eins og ykkur, ungu menn, bað Drottinn Enok að sinna mikilvægum prestdæmisskyldum. Verkefni hans var að boða ranglátu fólki iðrun. Enok lét efasemdir sínar í ljós. „[Ég er] … aðeins drengur,“ sagði hann. „Allir fyrirlíta mig, því að mér er tregt um mál. Hvers vegna er ég þjónn þinn?“ (HDP Móse 6:31).

Drottinn svaraði með krafti og fullvissu. „Far og gjör eins og ég hef boðið þér. … Ljúk upp munni þínum og hann skal fyllast. … Andi minn er yfir þér …; Fjöllin munu hörfa undan þér …; Gakk þess vegna með mér“ (HDP Móse 6:32, 34).

Enok lærði að þegar Drottinn veitir okkur verkefni, tökumst við ekki á við það einsömul. Þegar við gerum og höldum sáttmála við Krist, göngum við með honum og tökum þátt í krafti hans – við verðum verkfæri í höndum hans.

Þið, eins og Enok, gegnið mikilvægu hlutverki: hirðisþjónustu, þjónustu í musterinu, þjónustu sakramentis, ritningarnámi, að lifa eftir reglum fagnaðarerindisins, iðrast, búa ykkur undir trúboð og fleira. Það getur verið yfirþyrmandi. Ykkur gæti fundist þið vera vanmáttug. Það er allt í lagi. Þetta snýst ekki um að gera þetta einsömul. Þetta snýst um að velja í dag – í dag og alla daga – að ganga með Guði.

Með hans hjálp, getið þið gert allt. Hann mun styrkja, fyrirgefa og virkja ykkur umfram náttúrulega getu ykkar. Hann elskar ykkur! Við, sem aðalforsætisráð Piltafélagsins, elskum ykkur og hlökkum til að vera með ykkur í að kanna hið innblásna þema 2026: „Gakk með mér.“

Aðalforsætisráð Piltafélagsins