Spurningar og svör
„Hvernig get ég best miðlað öðrum ‚ávexti‘ fagnaðarerindisins, svo þau sjái hve mikilvægt þetta er mér?“
„Lifið þannig eftir fagnaðarerindinu að enginn vafi leiki á að þið eruð öðruvísi. Ef aðrir sjá að þið eruð að reyna að lifa samkvæmt trú ykkar, mun það verða forvitið. Það er tilvalinn tími til að miðla vitnisburði ykkar, elsku ykkar til Krists og hve hamingjusöm þið eruð í fagnaðarerindinu.“
Miguel A., 17, Asturias, Spáni
„Einn af ávöxtum fagnaðarerindisins er gleði. Miðlið gleðinni sem þið finnið í Kristi með því einfaldlega að brosa og þjóna öðrum eins og Jesús myndi gera. Þegar fólk spyr hvernig helgin hafi gengið, miðlið þá upplifunum ykkar í kirkju, til að hjálpa þeim að skilja hve mikilvægur Jesús Kristur er ykkur.“
Eliza S., 16 ára, Wicklow, Írlandi
„Ég get boðið fólki í kirkju svo það sjái sjálft hið góða!“
Cal L., 11 ára, Texas, Bandaríkjunum
„Ég hlýt svo margar blessanir fyrir tilstilli friðþægingar frelsarans, sem fyllir líf mitt gleði. Návist himnesks föður huggar mig og veitir mér sjálfstraust til að deila þeirri gleði. Að deila gjöfum mínum og blessunum með öðrum, mun vissulega sýna þeim hve fagnaðarerindið er mér mikilvægt.“
Mariata M., 16 ára, Tuamasaga, Samóaeyjum
„Að lifa eftir fagnaðarerindinu á heimilinu og á almannafæri, er fyrsta skrefið í að miðla því á áhrifaríkan hátt! Fólk vill kannski ekki heyra það sem þú segir, en það mun sjá hvað þú gerir og það er áhrifamikill vitnisburður.“
Esteicy M., 19 ára, Paraíba, Brasilíu
„Ég get best miðlað ‚ávexti‘ fagnaðarerindisins með því að vera þeim gott fordæmi og bjóða þeim á viðburði.“
McLayne B., 15, Kaliforníu, Bandaríkjunum