Frá ungmennum
Virðing fyrir líkama mínum
Myndskreyting: Katelyn Budge
Ég geng í skóla þar sem margar stúlkur klæða sig í afhjúpandi föt, drekka kaffi og taka ákvarðanir sem samræmast ekki gildum mínum.
Leiðarvísirinn Til styrktar ungmennum hefur hjálpað mér að vera trúföst boðorðunum og trú minni. Ég fylgi til dæmis Vísdómsorðinu þannig að þegar vinir mínir bjóða mér kaffi, hafna ég kurteisislega. Þegar þeir stinga upp á ákveðnum stíl af fötum, vel ég útbúnað sem mér finnst þægilegur og líður siðsamlega í. Ég trúi því að velsæmi sé mikilvægt vegna þess að líkami okkar er musteri. Þegar ég vel að klæðast siðsamlega, sýni ég líkama mínum virðingu og þakklæti til Guðs.
Ég reyni að beita kenningum fagnaðarerindisins í daglegu lífi mínu og þegar á reynir, sný ég mér að ritningarnámi til að hljóta leiðsögn og opinberun. Ég veit að himneskur faðir og Jesús Kristur elska okkur. Himneskur faðir mun alltaf leiðbeina og vernda okkur þegar við leitum hans. Jafnvel í hinu smáa, blessar hann okkur á hverjum degi.
Mamello M., 16 ára, Gauteng-héraði, Suður-Afríku
Elskar að tefla, baka, spila á hljóðfæri, læra mismunandi tungumál, læra stjörnufræði, spila hokkí og skapa list.