Til styrktar ungmennum
Fallið: Adam og Eva
Til styrktar ungmennum, janúar 2026


Sögur úr Gamla testamentinu

Fallið: Adam og Eva

HDP Móse 2–4; 1. Mósebók 2–3

Fallið: Adam og Eva

Hala niður PDF-skjali

Myndskreyting: Katy Dockrill

Saga þeirra

Garðurinn

Adam og Eva bjuggu í aldingarðinum Eden – fallegum garði þar sem þau upplifðu ekki sársauka, harðræði, dauða eða gleði. Þau gátu líka notið návistar Guðs.

Freistingin

Himneskur faðir bauð þeim að eignast börn og neyta ekki ávaxtar af „skilningstré góðs og ills“. Satan freistaði Adam og Evu til að neyta af ávextinum.

Ákvörðunin

Eva og Adam kusu að borða ávöxtinn. Þau yrðu að yfirgefa garðinn og návist Guðs, ganga í gegnum erfiðleika og að endingu deyja. Þau myndu þó líka geta upplifað gleði, haldið boðorð Guðs um að eignast börn og þróast í átt að eilífu lífi.

Áætlunin

Í fyrstu földu Adam og Eva sig. En þegar þau lærðu um áætlun himnesks föður, vissu þau hins vegar að ákvörðun þeirra gerði börnum himnesks föður kleift að koma til jarðar. Þau lærðu að himneskur faðir myndi senda Jesú Krist til að frelsa þau (og okkur) frá syndum okkar og dauða.

Sagan þín

Þið lifið í heimi harðinda og freistinga, líkt og Adam og Eva, og stundum langar ykkur að fela ykkur eða eruð óttaslegin. Vegna Jesú Krists, getið þið þó iðrast og breyst. Sá dagur kemur að þið munið rísa upp og geta snúið aftur til lífs með honum.