Frá ungmennum
Stam í sakramentisbæninni
Myndskreyting: Katelyn Budge
Ég er með málhömlun sem veldur því að ég stama í ýmsum aðstæðum, þar með talið meðan ég blessa sakramentið. Í fyrstu var það mikil áskorun. Ég íhugaði jafnvel að hætta að blessa sakramentið.
En ég byrjaði að biðja til himnesks föður. Ég bað stöðugt til hans fyrir hjálp. Ég ber vitni um að hann heyrir bænir okkar. Eftir nokkurn tíma, stamaði ég minna.
Stöku sinnum stama ég enn, en frelsarinn hefur hjálpað mér að sigrast á þessari áskorun. Vegna þjáninga sinna í Getsemanegarðinum, skilur hann tilfinningar mínar í þessum aðstæðum.
Ég tekst líka á við þessa áskorun í skólanum. Í upphafi var það erfitt, vegna þess að fólk hló að mér. En ég fann elsku frelsarans í lífi mínu. Hann huggaði mig og hjálpaði mér.
Daniel S. A., 17 ára, Rió de Janeiro, Brasilíu
Finnst gaman að spila körfubolta, blessa sakramentið og hafa fjölskyldukvöld.