Þema ungmenna 2026
Gakk með mér
Þemalag ungmenna 2026
Ungmenni frá ýmsum löndum Afríku koma fram í tónlistarmyndbandi þemalags ungmenna 2026.
Ef þú eldinn gegnum arkar,
fætur undraslitnir nú.
Þá mun lindin lífsins vatns
hjarta líkna þreyttu’ í trú.
Er slóð hans sérð og sporin
og hans skynjar leiðarljós,
þá hann hrópar: Kemur þú?
Hann segir:
[Viðlag:]
Gakk með mér
og ég mun stilla ólgusjóinn.
Gakk með mér,
ég þá flytja mun þín fjöll.
Ó, mína hönd
tak í þegar hjarta’ að þrengir.
Gakk með mér
og þá geng ég með þér.
Hann auðnir gengur yfir,
þann eina sækir hann
og styður við þann sjúka,
jörð sýnir kærleikann.
Er honum hér við fylgjum,
hann Herrans veitir kraft,
þá hann hrópar: Kemur þú?
[Viðlag:]
Gakk með mér
og ég mun stilla ólgusjóinn.
Gakk með mér,
ég þá flytja mun þín fjöll.
Ó, mína hönd
tak í þegar hjarta’ að þrengir.
Gakk með mér
og þá geng ég með þér.
Gangið með frelsaranum
Eruð þið að ganga í gegnum erfiðleika? Eruð þið að byrja á einhverju nýju, spennandi eða kannski svolítið ógnvekjandi?
Þið þurfið aldrei að ganga í gegnum þetta allt ein.
Frelsari ykkar, Jesús Kristur, mun ganga með ykkur í gegnum allt það sem þið standið frammi fyrir.
Hann býður ykkur að ganga með sér.