3 leiðir til að hafna Satan og velja Jesú Krist
Skilningur á því sem gerðist í fortilverunni getur hjálpað ykkur að taka góðar ákvarðanir núna.
Myndskreyting: Dean MacAdam
Þegar himneskur faðir kynnti áætlun sína um eilífa hamingju okkar og framþróun, lofaði hann að senda frelsara okkur til hjálpar. Þegar faðirinn spurði „hvern á ég að senda?“ (Abraham 3:27), sagði Jesús Kristur, „[sem faðirinn] elskaði og útvaldi frá upphafi“ (HDP Móse 4:2): „Hér er ég, send mig“ (Abraham 3:27). Hann bað ekki um neitt, hann vildi bara gera vilja föður okkar (sjá HDP Móse 4:2).
Svo kom Lúsífer. Hann sagði einnig „send mig“ (sjá HDP Móse 4:1). Lúsífer var þó eigingjarn og ekki fús til að fórna fyrir okkur. Hann þráði heiður, mátt og dýrð Guðs fyrir sig sjálfan (sjá HDP Móse 4:1). Lúsífer þráði að eyðileggja sjálfræði okkar. Það er óljóst hvernig hann ætlaði að gera þetta. Við vitum þó að án sjálfræðis gætum við aldrei þróast og orðið eins og himneskur faðir okkar. Lúsífer gerði því í raun uppreisn gegn himneskum föður og hafnaði áætlun hans.
Uppreisn Lúsífers olli stríði á himni, þar sem honum var „varpað niður“ og hann „varð Satan“ (HDP Móse 4:3–4). Þriðjungur herskara himins fylgdi honum (sjá Kenning og sáttmálar 29:36). Við nýttum hins vegar sjálfræði okkar og fylgdum Jesú Kristi.
Stríðið sem hófst á himnum geisar enn í dag. Satan og fylgjendur hans reyna stöðugt að standa gegn okkur. Hér eru þrjár leiðir til að bera kennsl á klæki og aðferðir Satans, forðast gildrur hans og velja Jesú Krist út ævina.
1. Ekki láta biturleika vinna
Fyrir mörgum árum reyndi ég eitt sinn að sannfæra skólavini mína um að vinna ekki heimavinnuna sína vegna þess að ég hafði ekki unnið mína. Ég hafði rangt fyrir mér en ég hélt að ef við lentum öll í vandræðum, myndi mér einhvern veginn líða betur með sjálfan mig. Slæm hegðun mín minnir mig á viðhorf Satans til okkar. Hann vill spilla möguleikum okkar á eilífu lífi, því hann er vansæll.
Satan er svo afskræmdur af biturleika að hann – jafnvel vitandi að honum mun að lokum mistakast – reynir af örvæntingu að „breiða [út] myrkraverk“ (Helaman 6:28) til að skaða eins mörg okkar og hann getur.
Súrleiki Satans er ekki áætlunin sem við völdum. Við getum notað sjálfræði okkar til að halda áfram að fylgja Jesú Kristi og halda áfram að hafna bitrum, innantómum og takmarkandi freistingum Satans. Frelsarinn gaf líf sitt svo við gætum orðið það sem hann veit að við getum orðið og upplifað sætleika eilífs lífs.
2. Ekki láta undan óttanum
Stundum velti ég því fyrir mér hvers vegna þriðjungur andabarna Guðs myndi velja að hafna áætlun hans. Satan veit að ótti og efi eru hvort tveggja áhrifaríkar leiðir til að draga úr trú. Hann gæti freistað okkar til að efast um virði okkar eða sannfæra okkur um að við getum í raun ekki orðið hrein fyrir friðþægingu Jesú Krists. Hann gæti líka reynt að fá okkur til að láta undan óttanum við að iðrast eða fylgja áætlun Guðs.
Þegar við stöndum frammi fyrir þrautum og erfiðleikum, getum við valið að treysta á áætlun Guðs og Jesú Krist. Hann hefur þolað allt svo að hann geti verið styrkur okkar þegar við stöndum frammi fyrir ótta og fyrir hans tilverknað getum við að lokum sigrast á óttanum.
3. Takið á móti öllu því sem frelsarinn býður ykkur
Himneskur faðir og Jesús Kristur gera allt til að göfga okkur og styrkja. Hverjir aðrir segjast vilja hjálpa okkur að verða okkar allra besta sjálf og gefa okkur allt sem þeir eiga án þess að halda aftur af sér? Allt sem faðirinn á getur verið okkar! Það er aðeins í boði fyrir tilstilli Jesú Krists.
Þegar ég hugsa um óeigingirni og endurlausnarmátt frelsarans, langar mig að fylgja honum. Jesús Kristur er fullkominn meistari hinnar fullkomnu áætlunar. Þegar við veljum hann, hjálpar hann okkur að sigrast á andstæðingnum, fylgja áætlun himnesks föður og ná fram guðlegum örlögum okkar.