Allt verður betra þegar þið treystið á Guð
Þegar þið treystið á himneskan föður, munið þið geta tekist á við hvað eina sem þið eruð að ganga í gegnum.
Ljósmyndir: Giovana Flavia de Almeida Campos
Ég hef verið meðlimur Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu frá átta ára aldri. Nokkrum mánuðum eftir skírn mína, fjarlægðumst við, ég og fjölskylda mín, kirkjuna.
Mörgum árum síðar, þegar við ákváðum að koma aftur skall Kóvid-19 heimsfaraldurinn á og kirkjusamkomur urðu rafrænar. Enn og aftur fór mig að reka frá og ég stóð frammi fyrir fjölmörgum áskorunum á leiðinni.
Erfiðleikar og efasemdir
Á þeim tíma byrjaði ég að efast um sannleiksgildi fagnaðarerindisins, vitnisburð minn og hver Jesús Kristur var. Á einum tímapunkti efaðist ég meira að segja um tilvist hans og fór að halda að ég væri trúleysingi. Hjarta mitt var hart og kalt eins og ísklumpur.
Þessi áfangi lífs míns var ótrúlega erfiður og flókinn. Ég held að það sé vegna þess að þegar við hættum að trúa á Jesú Krist og kraft hans, missir líf okkar merkingu og við verðum vansæl.
Trúarskólinn breytti mér
Að lokum hvatti faðir minn mig að byrja aftur að sækja kirkju. Ég gerði þetta þrátt fyrir að ég væri enn ráðvillt og að takast á við margar spurningar.
Dag einn í kirkju sá ég veggspjald um trúarskólann. Þetta vakti áhuga minn. Ég fór til biskupsins míns til að spyrja hann um þetta. Hann bætti mér þegar í stað í hópspjall trúarskólans og sagði að það byrjaði klukkan 5:30 á morgnanna.
Ég tók því að sækja trúarskólann. Þetta hjálpaði mér að eignast nýja vini og að lokum öðlast vitnisburð um kirkjuna og ritningarnar. Ég var með kennara sem hvatti bekkinn minn virkilega áfram og kallaði fram það besta í okkur. Ég komst að því að ritningarnám gerir okkur sannarlega kleift að þekkja frelsarann. Það er tvennt ólíkt að hlusta á vitnisburð einhvers og að leita eigin vitnisburðar með námi og trú.
Jasmine með vinkonum sínum Victóriu (til vinstri) og Carol (til hægri). Vinir Jasmine hjálpa henni að lifa eftir fagnaðarerindi Jesú Krists.
10 ráð til að verða lærisveinn Krists
Í upphafi vissi ég af himneskum föður og Jesú Kristi í gegnum það sem aðrir sögðu mér. Við getum þó ekki alltaf eingöngu reitt okkur á vitnisburði annarra. Við þurfum að leitast við að þekkja frelsarann af eigin raun.
Við þurfum að helga frelsaranum tíma og guðlega hluti, svo við getum orðið lærisveinar hans. Mér hefur lærst það að þið munuð kynnast honum þegar þið:
-
Leitið hans af ásetningi.
-
Lesið ritningarnar.
-
Kappkostið að bæta ykkur andlega.
-
Biðjist fyrir.
-
Farið í musterið.
-
Þjónið öðrum.
-
Fastið
-
Fylgið fordæmi hans.
-
Hafið gott hjarta.
-
Neitið að tala illa um eða slúðra um aðra.
Þetta hjálpaði mér að kynnast frelsaranum – og að verða einn af lærisveinum hans. Að vera lærisveinn Jesú Krists er mjög mikilvægt, því við getum notað ljós hans til að hjálpa öðrum. Með góðu fordæmi okkar geta aðrir séð hversu mikil blessun fagnaðarerindið er.
Að sækja kirkju og miðla fjölskyldu sinni fagnaðarerindinu, hefur blessað líf Jasmine á margan hátt.
Hlutirnir verða betri
Þegar ég kom aftur til kirkju, var ég á botninum – full efasemda, án vina, án vonar, óviss um hver ég raunverulega væri eða hver tilgangur minn væri.
Nú er fagnaðarerindið „loginn“ sem hefur lýst upp líf mitt og hjálpar mér að gera hið rétta og verða betri manneskja. Án fagnaðarerindisins, veit ég ekki hvar ég væri.
Allt verður betra í lífinu þegar þið treystið á Guð. Frá því augnabliki sem þið leitið hans, byrjið þið að stíga upp úr gryfjunni og hlutirnir munu byrja að batna. Auðvitað mun mótlætið enn koma, en þetta traust og þessi löngun til að trúa mun smám saman lyfta ykkur. Það gæti tekið tíma, en hlutirnir eiga eftir að lagast!
Þegar þið treystið himneskum föður, munið þið geta tekist á við hvað eina sem þið gangið í gegnum – hvort sem það séu áskoranir, efasemdir, heilsufarsvandamál eða einmanaleiki. Þið gætuð t.d. náð góðum einkunnum á prófi, náð betri heilsu eða hlotið svör – stundum svör sem þið hafið leitað eftir frá 10 ára aldri, eins og í mínu tilfelli – ef þið leitið hans og treystið honum.
Ég er fullviss um þetta. Þökk sé fagnaðarerindinu get ég sagt að ég hef breyst. Í raun hefur allt breyst – hjarta mitt, hugsanir, hegðun og reglur. Nú þekki ég sannleikann og það skiptir öllu máli. Allt hefur batnað vegna fagnaðarerindis Jesú Krists.
Höfundurinn er frá São Paulo, Brasilíu.