Til styrktar ungmennum
Kortið þitt heim
Til styrktar ungmennum, janúar 2026


Kortið þitt heim

Af hverju er svo mikilvægt að skilja sáluhjálparáætlunina?

kort

Myndskreyting: Mackenzie Alexander

Í Mormónsbók hóf spámaðurinn Jarom heimild sína á því að segja: „Hverju gæti ég bætt við það, sem feður mínir hafa þegar ritað? Því að hafa þeir ekki opinberað sáluhjálparáætlunina?“ (Jarom 1:2).

Ef hann hélt að við þyrftum ekkert fleira, þá hlýtur sáluhjálparáætlunin að vera býsna mikilvæg!

Og hún er það! Hún er hið fullkomna kort fyrir líf okkar. Russell M. Nelson forseti sagði eitt sinn: „Skilningur á dásamlegri áætlun Guðs afhjúpar leyndardóma lífsins og eyðir óvissunni um framtíð okkar.“

Hvernig getur þetta kort hjálpað ykkur að rata um óvissutíma lífsins?

Hvaðan kom ég?

Guð er himneskur faðir ykkar. Þið lifðuð með honum áður en þið fæddust. Hann elskar ykkur!

Öldungur Alan T. Phillips, af hinum Sjötíu, útskýrði: „Þið eruð ekki tilviljunarkennd aukaafurð náttúrunnar, alheims-munaðarleysingjar eða afleiðing efnis plús tíma plús tilviljunar. Þar sem er hönnun, er hönnuður.“

Þegar lífið er erfitt er hughreystandi að vita að þið eruð hér í ákveðnum tilgangi og að ástríkur himneskur faðir vakir yfir ykkur.

Hvert er ég að fara?

Þið eruð ekki hér til að reika stefnulaust – þið hafið ákvörðunarstað! Himneskur faðir vill að þið komið heim til hans og verðið eins og hann. Hann fyrirbjó sáluhjálparáætlunina svo þið getið hlotið allar blessanir ríkis hans (sjá Kenning og sáttmálar 14:7).

Að þekkja áætlun himnesks föður, mun hjálpa ykkur í gegnum lífið. Þegar þið „horfið fram á við“ og hugsið himneskt, munu margar ákvarðanir verða auðveldari – þar á meðal að velja að fylgja Jesú Kristi.

Hvernig kemst ég þangað?

Auk þess að tilgreina okkur ákvörðunarstað, sýnir sáluhjálparáætlunin líka leiðina þangað.

Jesús Kristur er hið fullkomna dæmi um að fylgja veginum heim. Ef þið lítið til hans – og gangið með honum – mun hann hjálpa ykkur að snúa aftur til himnesks föður og verða líkari honum. Líkt og öldungur Sergio R. Vargas, af hinum Sjötíu, útskýrði: „Djúpt innra með hverju okkar býr þrá um að snúa aftur til okkar himnesku heimkynna og Jesús Kristur er okkar himneska leiðarkerfi. Hann er vegurinn.“

Hvað ef ég villist?

Það er hægt að taka vitlausa beygju, jafnvel með kort við höndina. Þið munið enn gera mistök. En hafið ekki áhyggjur! Himneskur faðir sá ykkur fyrir lausnara svo þið gætuð alltaf iðrast, snúið aftur til hans og orðið líkari honum. Munið: „Við höldum okkur ekki á sáttmálsveginum með því að gera aldrei mistök. Við höldum okkur á veginum með því að iðrast dag hvern.“

Þegar þið rannsakið sáluhjálparáætlunina, hafið þá hugfast að hún var hönnuð af kærleika. Himneskur faðir vill að þið komið heim. Og ef þið fylgið kortinu hans, mun hann hjálpa ykkur að komast þangað.