Til styrktar ungmennum
Tengjast
Til styrktar ungmennum, janúar 2026


Tengjast

Anavai H.

17, Tahítí, Frönsku Pólýnesíu

stúlka

Ljósmyndir: Stéphane Sayeb

Foreldrar mínir skildu og það var sorglegur atburður sem hafði áhrif á ungt hjarta mitt. Það reyndist mér afar erfitt, því ég vildi ekki að leiðir þeirra skildu, en ég fann huggunina sem ég þurfti í Kristi. Þetta var sönn andleg upplifun.

Á þessum erfiðu tímum fann ég kraft í orðum Krists. Lexíurnar sem ég hlaut frá foreldrum mínum og leiðtogum hjálpuðu mér að einbeita mér að kenningum hans. Fagnaðarerindið varð mér vígi sem ég gat sótt styrk í – styrk sem þurfti til að halda í trú mína, þrátt fyrir fjölskyldustorma.

Í dag held ég áfram að finna gleði í fagnaðarerindinu og í gegnum musterisupplifanir. Mig langar að læra jafnvel enn meira um Krist. Mig langar að kynnast honum jafnvel enn betur og umfram allt að feta í fótspor hans. Ég á vitnisburð um að Kristur leiðir okkur á veginum og að hann muni hjálpa okkur að hafa hann að leiðarljósi, þrátt fyrir erfiðleika.