Til styrktar ungmennum
Nýr námsbekkur, ný tækifæri
Til styrktar ungmennum, janúar 2026


Nýr námsbekkur, ný tækifæri

Að fara í nýjan námsbekk eða sveit? Hér er nokkuð til að hlakka til!

piltar

Myndskreyting: Cinta Fosch

Upphaf nýs árs færir oft miklar breytingar – þar með talið að skipta mögulega yfir í aðra námsbekki eða sveitir í kirkjunni! Hvort sem þið eruð að hætta í Barnafélaginu, fara í Líknarfélagið eða öldungasveitina, eða bara að fara yfir í næsta námsbekk Stúlknafélagsins eða í Aronsprestdæmissveit, þá er hér þrennt sem þið getið hlakkað til.

1. Nýtt fólk

Það gæti virst ógnvekjandi að vera í bekk með fólki sem er eldra en þið, en þið eigið miklu meira sameiginlegt en ykkur gæti grunað. Þið eruð öll lærisveinar Jesú Krists sem reyna að fylgja honum. Að skipta um námsbekk er tækifæri til að heyra nýja innsýn frá fólki með aðra reynslu en þið – og tækifæri til að eignast nýja vini.

fólk að spila á hljóðfæri

2. Nýir viðburðir

Piltafélagið og Stúlknafélagið eru skemmtileg! Þið gætuð haft nýjar leiðir til að tengjast öðrum ungmennum, svo sem með viðburðum og búðum námsbekkja og sveita. Þegar þið eruð 14 ára gætuð þið líka farið á TSU-ráðstefnur, dansleiki og í trúarskóla yngri deildar.

Sem ungt fullorðið fólk, getið þið sótt trúarskóla eldri deildar og viðburði sem skipulagðir eru af Líknarfélagi ykkar, öldungasveit eða deild eða samkomustað ungs einhleyps fólks.

fólk við musterið

3. Ný forréttindi

Með aldrinum fáið þið fleiri tækifæri til að þjóna í kirkjunni, eins og að skírast fyrir látna, blessa sakramentið eða uppfylla köllun (þar með talið hirðisþjónustuverkefni). Nýtið ykkur þessi tækifæri til andlegs vaxtar og njótið þess hvernig þau styrkja tengsl ykkar við himneskan föður, Jesú Krist og fólkið sem þið þjónið.

Þegar þið skiptið yfir í nýjan bekk, hafið þá hugfast að „þið eruð öll eitt í Kristi Jesú“ (Galatabréfið 3:28). Þegar þið hafið hann sem miðpunkt kirkjuupplifunar ykkar, mun hann hjálpa ykkur að finna gleði hvar sem þið eruð.