Hin dýrmætu fyrirheit áætlunar föðurins
Sál okkar ætti að þenjast út af þakklæti er við íhugum hina miklu áætlun Guðs fyrir okkur.
Myndskreyting: Alyssa Petersen
Áætlun himnesks föður lýsir hinum „[dýrmætu og háleitu fyrirheitum]“ (sjá 2. Pétursbréf 1:3–4) og sannleika sem skilgreinir eilífa sjálfsmynd okkar og tilgang.
Eins og kemur fram í „Fjölskyldan: Yfirlýsing til heimsins“: „Allar mannlegar verur – karlar og konur – eru skapaðar í mynd Guðs. Hver þeirra er ástkær andasonur eða dóttir himneskra foreldra, og sem slík býr sérhvert þeirra yfir guðlegu eðli og örlögum.“
Himneskur faðir lofar, að ef við fylgjum áætlun hans og fordæmi hans ástkæra sonar, höldum boðorðin og stöndum stöðug allt til enda, munum við „öðlast eilíft líf, en sú gjöf er mest allra gjafa Guðs“ (Kenning og sáttmálar 14:7).
Verk Guðs beinist að framþróun og upphafningu barna hans. Sérhver hluti áætlunar hans er hannaður til að blessa okkur, því „verðmæti sálna er mikið í augum [hans]“ (Kenning og sáttmálar 18:10).
Áætlun föðurins
Á stórþingi fortilverunnar kynnti himneskur faðir andabörnum sínum áætlun sína um eilífa framþróun þeirra og hamingju. Hann sagði okkur að hann myndi senda okkur til jarðar til að reyna okkur, sjá hvort við myndum hlýða honum og verða hæf til að „ bætast dýrð við dýrð alltaf og að eilífu“ (sjá Abraham 3:24–26).
Og hann sagði síðan: „Hvern á ég að senda? Og einn svaraði, líkur mannssyninum: Hér er ég, send mig. Og annar svaraði og sagði: Hér er ég, send mig. Og Drottinn sagði: Ég mun senda þann fyrsta.
Og annar var reiður, … og á þeim degi fylgdu margir á eftir honum“ (Abraham 3:27–28).
Aðeins ein áætlun var kynnt – áætlun föðurins. Himneskur faðir okkar lagði ekki fram spurninguna: „Hvað eigum við að gera?“ Hann leitaði ekki eftir hugmyndum, bað ekki um tillögur eða óskaði eftir uppástungum. Kjarni spurningar hans snerist um hvern ætti að senda til að framfylgja skilmálum og skilyrðum áætlunar hans.
Lúsífer lagði ekki fram áætlun sem meirihluti þátttakenda í fortilverunni hafnaði. Hann gerði uppreisn! Hann reyndi að tortíma sjálfræði mannsins, var varpað niður og „varð Satan, … djöfullinn, faðir allra lyga, til að blekkja og blinda mennina og leiða þá ánauðuga að vilja sínum“ (sjá HDP Móse 4:1, 3–4). Dramb, hroki og eigingirni voru hvati hans gegn áætlun föðurins.
Áætlun föðurins og fagnaðarerindi frelsarans
Áætlunin lýsir verki föðurins og sonarins, sem gerir blessanir eilífs lífs tiltækt öllum mönnum.
Fagnaðarerindi Jesú Krists er leiðin til að hljóta þær blessanir sem lofaðar eru í áætlun Guðs, jafnvel þá kenningu, þær reglur, helgiathafnir og sáttmála sem við verðum að trúa á og fylgja. „ekkert annað nafn [er] gefið undir himninum, sem frelsað getur manninn, en nafn Jesú Krists“ (2 Nefí 25:20). Sannarlega er Drottinn Jesú Kristur „vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins, nema fyrir [hann]“ (Jóhannes 14:6; skáletrað hér).
Titlar áætlunarinnar í Mormónsbók
Við lærum mikilvægan sannleika með því að bera kennsl á og læra um hina mörgu mismunandi titla áætlunar föðurins í Mormónsbók: Öðru vitni um Jesú Krist. Íhugið til dæmis eftirfarandi valin dæmi um titla:
-
„[Hin miskunnsama] áætlun skaparans mikla“ (2. Nefí 9:6).
-
„Áætlun Guðs vors“ (2. Nefí 9:13).
-
„Sáluhjálparáætlunin“ (Jarom 1:2; Alma 24:14).
-
„Endurlausnaráætlunin“ (Alma 12:25, 26, 30, 32, 33; 42:11, 13).
-
„[Áætlun] um endurreisn“ (Alma 41:2).
-
„[Sæluáætlunin]“ (Alma 42:16).
-
„Hin mikla áætlun miskunnarinnar“ (Alma 42:31).
Hver þessara titla hjálpar okkur að skilja betur hin dýrmætu loforð áætlunar föðurins og auðgar skilning okkar á tilgangi og merkingu jarðnesks lífs okkar.
Þýðingarmikið er að mest notaði titillinn yfir áætlun Guðs í Mormónsbók („endurlausnaráætlunin“) einblínir á endurlausn frá synd og dauða sem gerð er möguleg með friðþægingu Jesú Krists (sjá Alma 12:25; 33:22).
Vegurinn er ruddur
Sálir okkar ættu að þenjast út af þakklæti þegar við íhugum hina miklu áætlun Guðs. Þekking á áætlun hans veitir dýrmæta innsýn, auðgar gleði okkar og styrkir okkur til að sigrast á áskorunum okkar og mótlæti.
Himneskur faðir þráir að við snúum aftur heim til hans. Hann býður og lofar blessunum, en hann mun aldrei knýja okkur, þvinga eða hefta notkun þess siðferðislega sjálfræðis sem hann gaf okkur. Við verðum að framkvæma og velja að snúa aftur til hans með því að fylgja fordæmi hans ástkæra sonar.
„Vegurinn er ruddur, og ef við lítum upp, þá munum við lifa að eilífu“ (Alma 37:46; skáletrað hér).
Ég ber gleðilegt vitni um að himneskur faðir er höfundur hinnar guðlegu áætlunar fyrir börn sín. Jesús Kristur er lausnari okkar og frelsari. Sem einn af síðari daga postulum hans, ber ég vitni um að hann er vissulega „ vegurinn, sannleikurinn og lífið“ (Jóhannes 14:6; skáletrað hér).