Til styrktar ungmennum
Hvers vegna tala ritningarnar um sköpun jarðar?
Til styrktar ungmennum, janúar 2026


Kjarni málsins

Hvers vegna tala ritningarnar um sköpun jarðar?

stúlka

Sköpunin, eftir Annie Henrie Nader

Ritningarnar tala um sköpunina til að kenna okkur tilganginn að baki henni, frekar en ferlið sem henni tengist.

Þegar Móse bað Drottin að „fræða [hann] um þessa jörð … og einnig um himnana,“ sagði Drottinn, „Þetta er verk mitt og dýrð mín – að gjöra ódauðleika og eilíft líf mannsins að veruleika“ (HDP Móse 1:36, 39).

Þegar Drottinn fræddi Abraham um sköpunina, sýndi hann honum stórþingið á himnum, þar sem andabörn Guðs voru saman komin. Abraham sá Jesú Krist útskýra í fortilverunni:

„Við munum fara niður, því að þar er rúm, og við munum taka af þessu efni og við munum gjöra jörð, sem þessir geta dvalið á –

Og með þessu munum við reyna þá og sjá hvort þeir gjöra allt, sem Drottinn Guð þeirra býður þeim –

… Og þeim, sem standast annað stig sitt, mun bætast dýrð við dýrð alltaf og að eilífu“ (Abraham 3:24–26).

Hið mikla og dýrðlega sköpunarverk Guðs, þar með talið þessi jörð, er hluti af áætlun hans til að hjálpa okkur, börnum hans, að hljóta sáluhjálp og upphafningu.

Heimildir

  1. Sjá „Creation,“ Topics and Questions, Gospel Library.