Barnavinur
Kraftaverkið í dyragættinni
Barnavinur janúar 2026


„Kraftaverkið í dyragættinni,“ Barnavinur, janúar 2026, 18–19.

Kraftaverkið í dyragættinni

Yrði allt í lagi með mömmu Gracie?

Sönn saga frá Bandaríkjunum.

Gracie kláraði síðasta pönnukökubitann, setti diskana í vaskinn og greip bakpokann sinn.

„Kominn tími til fjölskyldubænar,“ sagði pabbi.

Allir krupu í stofunni. George, tvíburabróðir Gracie, fór með bænina. „Viltu hjálpa okkur að eiga góðan dag í skólanum,“ sagði hann. „Og viltu blessa mömmu, að það verði allt í lagi með hana. Viltu blessa læknana að þeir viti hvernig á að hjálpa henni.“

Myndskreyting af fjölskyldu krjúpandi í bæn

Mamma Gracie fékk heilaæxli. Hún þyrfti að fara í skurðaðgerð. Læknarnir voru vongóðir um að allt yrði í lagi, en gátu ekki vitað það fyrir víst.

Eftir bænina, faðmaði mamma alla að sér. „Ég fer aftur til læknis í dag. Vonandi fáum við fleiri svör.“

Hvað ef mamma deyr og ég get ekki talað lengur við hana? velti Gracie fyrir sér. Hún var svo hrædd. Hún gat ekki hugsað sér að geta ekki faðmað mömmu eða hitt hana eftir skóla.

Þann dag fór Gracie í kennslustund, frímínútur og hádegismat eins og venjulega. Hún hélt samt áfram að hugsa um mömmu. Þegar hún var hrædd, hugsaði hún um uppáhalds Barnafélagslagið sitt. Með fjölskyldunni minni vil ég vera, já vera eilíf ár. Það sýnt mér hefur Drottinn hár, söng hún í huga sínum.

Þegar þau komu heim úr skólanum hlupu Gracie og George inn til mömmu og föðmuðu hana innilega. „Hvernig var hjá lækninum?“ spurði Gracie.

„Það gekk vel,“ sagði mamma. „Við vitum ekki mikið ennþá. Ég á nokkra læknatíma tíma í viðbót í næstu viku fyrir aðgerðina.“

Gracie var glöð að sjá mömmu sína. Hún hafði þó enn áhyggjur.

Nokkrum dögum síðar hringdi dyrabjallan. Þegar mamma opnaði dyrnar, heyrði Gracie söng.

Hún stóð með mömmu á tröppunum og horfði út yfir hóp af fjölskylduvinum úr kirkjunni og skólanum. Þau sungu Barnafélagssöngva. „Við höfum verið að hugsa til þín og vildum hughreysta þig,“ sagði einn þeirra. Síðan byrjuðu þau aftur að syngja á ný.

Myndskreyting af mömmu og börnum að opna dyr að hópi fólks að syngja

George kom líka til dyra. Hann sneri sér að Gracie. „Syngjum með þeim!“

Gracie og George gripu úlpurnar sínar og hlupu út til að slást í för með hinum. Þau sungu eins hátt og þau gátu:

Jesús er kraftaverka Guð.

Honum er alls ekkert ómögulegt,

En ég veit að:

Af öllum kraftaverkum hans, þá hlýtur það dásamlegasta að vera

Kraftaverkið sem bjargar mér!

Myndskreyting af stúlku að syngja

Gracie sá mömmu þerra tárin. Litla systir hennar, Rosie, hélt í fætur mömmu og hlustaði líka.

Friðsæl tilfinning færðist yfir Gracie. Hún hafði enn áhyggjur af mömmu. Hún vissi þó að Jesús Kristur elskaði þau. Hann var Guð kraftaverka. Gracie vissi einhvern veginn að allt yrði í lagi.

PDF-síða

Myndskreyting: Bethany Stancliffe

  • „The Miracle,“ Friend, júní 2018, 24–25.