Barnavinur
Fylgja Jesú á Filippseyjum
Barnavinur janúar 2026


„Fylgja Jesú á Filippseyjum,“ Barnavinur, janúar 2026, 10–11.

Fylgja Jesú á Filippseyjum

Þetta er Adam

Ljósmynd af ungum dreng

Adam fylgir Jesú Kristi með því að hjálpa öðrum. Einu sinni í skólanum var bekkjarfélagi hans ekki með neinn hádegismat. Adam ákvað að deila hádegismatnum sínum með honum. Hann segir: „Ég var glaður vegna þess að ég fékk að hjálpa einhverjum eins og Jesús gerði.“

Ljósmynd af Adam að lesa ritningarnar

Adam fylgir Jesú líka með því að biðjast fyrir. Hann bauð sig nýlega fram til forseta nemendaráðsins í skólanum. Hann bað himneskan föður um að hjálpa sér að gleðjast yfir hvaða úrslitum kosninganna sem yrðu. „Ég sigraði ekki, en ég veit að Drottinn hefur betri áætlanir fyrir mig,“ sagði Adam.

Um Adam

Ljósmynd af Adam og fjölskyldu hans sitjandi í sófa

Aldur: 10 ára

Frá: Rizal, Filippseyjum

Tungumál: Tagalog, enska

Markmið: Verða skurðlæknir, svo hann geti hjálpað fólki

Áhugamál: Vera með vinum og spila badminton

Fjölskylda: Adam, mamma, pabbi, tvær eldri systur og tveir eldri bræður

Það sem Adam heldur mest upp á

Mynd af Adam að spila á píanó með pabba sínum

Ritningarsaga: Þegar Jesús Kristur reis upp, því það merkir að við getum líka lifað aftur

Frídagur: Jólin

Matur: Nilaga (svínakjötskássa, bok choy og kartöflur)

Mynd af fiðluleik