„Hugdirfska í Barnafélaginu,“ Barnavinur, janúar 2026, 30–31.
Hugdirfska í Barnafélaginu
Sönn saga frá Austurríki.
Emily er hrædd við að fara ein í Barnafélagið. Hún biður mömmu að koma með sér.
„Ég fæ að fara í bekkinn minn og læra hvernig Jesús getur hjálpað mér,“ segir mamma.
„Og þú færð að fara í Barnafélagið og læra hvernig Jesús getur hjálpað þér.“
Mamma knúsar Emily. „Jesús getur hjálpað okkur, jafnvel þegar það er erfitt.“
Mamma gengur með Emily í Barnafélagið og veifar bless.
Þau læra lag um Jesú. Emily hefur gaman af tónlist. Hún upplifir sig örugga og hamingjusama.
Mamma er ekki í Barnafélaginu. Jesús hjálpar Emily að vera hugdjörf!
Myndskreyting: Natalie Briscoe