Barnavinur
Spjall við Emily um skírn
Barnavinur janúar 2026


„Spjall við Emily um skírn,“ Barnavinur, janúar 2026, 34–35.

Spjall við Emily um skírn

Emily er 9 ára gömul frá Sinaloa, Mexíkó. Við spurðum hana nokkurra spurninga um skírn hennar.

Segðu okkur frá sjálfri þér.

Ég elska að mála, teikna, baka eftirrétti, föndra og dansa og syngja með systkinum mínum. Mér finnst líka gaman að fara á búgarðinn hans afa míns til að fara á hestbak.

Emily á hestbaki

Hvernig bjóstu þig undir að skírast?

Á heimiliskvöldi kenndu foreldrar mínir mér um trú, iðrun, skírn og gjöf heilags anda. Ég undirbjó mig líka með því að lesa ritningarnar, biðja og horfa á myndbönd um Jesú Krist. Ég er sérstaklega hrifin af myndbandinu um skírn frelsarans í ánni Jórdan. Ég elska hlutann þegar hvíta dúfan birtist, sem táknar heilagan anda.

Ég og pabbi æfðum okkur líka í því hvernig við myndum standa í fontinum. Ég var hrædd við að fara ofan í vatnið, en pabbi minn kenndi mér hvernig beygja á hnén, hylja nefið, loka augunum og falla varlega aftur í fang hans. Við æfðum þetta oft og á skírnardaginn minn gat ég gert það mjög auðveldlega.

Hvað var sérstakt við skírnina þína?

Emily og pabbi hennar í skírnarfontinum

Þetta var ógleymanlegur dagur fyrir mig. Sumir fjölskyldumeðlimar fluttu ræður og bænir og voru vitni. Ég söng líka „Þegar ég skírist“ með aðstoð píanóleikarans í Barnafélaginu. Eftir að ég skírðist, fannst mér himneskur faðir minn og sonur hans, Jesús Kristur, svo nálægir mér. Ég grét sælutárum.

Hún var líka sérstök, því ég fékk þá hugmynd að bjóða nokkrum vinum mínum og fjölskyldumeðlimum, sem ekki eru meðlimir kirkjunnar, að koma í skírnina mína og þau samþykktu að koma. Einn vina minna sem mætti, kemur enn á kirkjuviðburði með foreldrum sínum.

Hvernig heldur þú skírnarsáttmála þína?

Ég reyni hvað ég get að muna eftir sáttmálum mínum með því að fara í kirkju, meðtaka sakramentið og minnast frelsarans. Að vita að hann gaf líf sitt fyrir mig, vekur mér þakklæti. Ég bið líka daglega, les í ritningunum, þjóna öðrum og reyni að vera góð manneskja.

Ég vona að þið vinir mínir, sem eru að fara að skírast, fáið komist nær himneskum föður og skynjað fullkomna elsku hans!

Emily og mamma hennar faðmast