Barnavinur
Matur & Skemmtun
Barnavinur janúar 2026


„Matur & Skemmtun,“ Barnavinur, janúar 2026, 12–13.

Matur & Skemmtun

Réttið hönd

Himneskur faðir og Jesús Kristur elska ykkur afar heitt! Búið til þetta skemmtilega kort til að segja einhverjum að þið elskið þau líka.

  1. Brjótið autt blað í helming.

  2. Leggið litla fingur meðfram brotinu og dragið útlínur handar ykkar.

  3. Klippið meðfram útlínunum. Ekki klippa gegnum brotið!

  4. Opnið kortið ykkar og skrifið eða teiknið falleg skilaboð í það fyrir einhvern.

Nammitími

Setjið álegg að eigin vali á tortillu. Þið getið prófað hnetusmjör og hlaup, pepperoni og ost, spínat og kalkún, eða hvað sem ykkur líkar! Rúllið síðan tortillunni upp og skerið hana varlega í sneiðar. Berið fram með vafningshliðina upp.

Hjálparhendur

Þegar Jesús Kristur var á jörðu elskaði hann alla og þjónaði þeim. Við getum fylgt fordæmi hans í dag. Hvernig hafið þið þjónað öðrum?

Þegar ég hjálpa einhverjum finnst mér himneskur faðir virkilega stoltur og hamingjusamur.

Felix G., 11 ára, Kisumu-sýslu, Kenýa

Ég hjálpaði strák sem meiddist á leikvellinum. Ég gladdist yfir því að hafa getað hjálpað.

Hazel L., 7 ára, Kaliforníu, Bandaríkjunum

PDF-síða

Listaverk: Anna Oldroyd