Barnavinur
Skírn er gleðileg gjöf
Barnavinur janúar 2026


„Skírn er gleðileg gjöf,“ Barnavinur, janúar 2026, 2–3.

Frá forsætisráði Barnafélagsins

Skírn er gleðileg gjöf

Ljósmynd af dreng sem kemur upp úr vatninu eftir að hafa verið skírður í fonti

Ég ræddi eitt sinn við dreng sem var kvíðinn yfir að láta skírast. Hann óttaðist að hann væri ábyrgur fyrir öllum syndum sínum.

Ég sagði honum að skírn væri gleðileg gjöf og hann þyrfti ekki að óttast. Þegar þið eruð skírð, getur himneskur faðir hjálpað ykkur meira! Nelson forseti kenndi að þegar þið eruð skírð og gerið sáttmála við Guð, mun hann aldrei gefast upp á því að hjálpa ykkur.* Himneskur faðir býður ykkur að meðtaka gjöf heilags anda til að leiða ykkur þegar að þið eruð staðfest. Þegar þið síðan takið ranga ákvörðun, getið þið iðrast og hlotið fyrirgefningu, því sonur himnesks föður, Jesús Kristur, hefur þegar greitt gjaldið fyrir syndir ykkar.

Hvílík blessun sem himneskur faðir býður ykkur, þegar þið eruð átta ára, að gera sáttmála við sig, svo að hann geti blessað ykkur enn meira! Svo mikil gleði bíður ykkar þegar þið takið þetta skref til að fylgja Jesú Kristi.

Þegar ég skírist, get ég …

minnst skírnarloforða minna þegar ég meðtek sakramentið.

(3. Nefí 18:6–7)

haft heilagan anda ætíð með mér.

(HDP Móse 6:52; Kenning og sáttmálar 20:77)

tilheyrt kirkju Jesú Krists.

(Kenning og sáttmálar 20:37)

tekið á mig nafn Jesú Krists og fylgt honum dag hvern.

(Mósía 5:8)

PDF-síða

Myndskreyting: Bryan Beach

  • Russell M. Nelson, „Hinn ævarandi sáttmáli,“ aðalráðstefna, október 2022.