„Reiðubúnar að ganga með Jesú,“ Barnavinur, janúar 2026, 4–5.
Reiðubúnar að ganga með Jesú
Halló!
Við heitum Hailey og Violet, tvíburasystur frá Arizona, Bandaríkjunum. Við viljum fylgja fordæmi frelsarans, svo við búum okkur undir að láta skírast!
Okkur finnst gaman að ganga meðfram á nálægt heimili okkar. Þegar við erum skírðar erum við að hefja nýja andlega göngu með Jesú! Heilagur andi mun vera með okkur þegar við reynum dag hvern að fylgja frelsaranum.
Stundum söfnum við litlum, hvítum skeljum við ána. Þær minna okkur á nokkuð sem frelsarinn lofaði: „Þó að syndir yðar séu sem skarlat, skulu þær verða hvítar sem mjöll“ (Jesaja 1:18). Vegna Jesú Krists, getum við iðrast og orðið hreinar aftur eftir að við höfum tekið ranga ákvörðun. Við munum klæðast hvítu á skírnardaginn okkar líka til að minnast þessa.
Pabbi okkar er virkilega góður í því að fleyta steinum á ánni! Hann kennir okkur hvernig á að gera það og við verðum aðeins betri í hvert skipti sem við reynum. Þetta er eins og það hvernig Jesús Kristur er hinn fullkomni kennari. Hann vill hjálpa okkur að læra og vaxa.
Grjótið í ánni er hált og það hjálpar að halda í höndina á mömmu. Jesús er alltaf til staðar fyrir okkur þegar við þörfnumst hjálpar. Þegar við erum skírðar lofum við að hjálpa öðrum eins og hann myndi gera!
Við elskum að ganga meðfram ánni með fjölskyldu okkar. Þegar við erum skírðar, verðum við á sáttmálsveginum, sem leiðir okkur aftur til okkar himnesku heimkynna. Við getum verið með fjölskyldu okkar að eilífu!
Ég hlakka til þess að láta skírast, því ég vil fylgja fordæmi Jesú. Ég fæ að sýna himneskum föður að ég vil halda boðorðin.
Violet W., 7 ára, Arisóna, Bandaríkjunum
Ég vil fylgja Jesú Kristi. Eftir að ég skírist, get ég fengið heilagan anda og heilagur andi getur hjálpað mér að sýna hugrekki.
Hailey W., 7 ára, Arisóna, Bandaríkjunum