„Margo og Paulo,“ Barnavinur, janúar 2026, 26–27.
Margo & Paulo
Ákvörðunin að vera friðflytjendur
Af hverju eruð þið svona þögul? Vanalega eruð þið hrókur alls fagnaðar!
Þau rifust um að þrífa herbergið sitt.
Fyrr…
Gott og vel! Sara Hlykkhreistur mun skipta herberginu okkar. Ef þú ferð yfir hana hana, mun hún BÍTA!
Ég vil hvort eð er ekki koma yfir til þín! Það er alltaf sóðalegt!
Ætlið þið virkilega að hunsa hvort annað í allt kvöld?
Þetta er ekki mjög góð framkoma bróður og systur við hvort annað.
Ég vil ekki einu sinni vera bróðir hennar lengur!
Ég meinti þetta ekki. Ég var bara svo reiður! Ég vildi óska að ég gæti tekið þetta aftur.
Þú getur ekki afturkallað orðin þín. En þú getur samt reynt að bæta fyrir þau.
Þú meinar að ég geti iðrast. Ekki satt?
Einmitt. Jesús Kristur friðþægði fyrir þig svo þú getur alltaf iðrast og reynt aftur.
Ég veit hvað ég þarf að gera. Og ég held að ég sé tilbúinn núna.
Seinna …
Margo? Má ég koma inn?
Vá, gerðir þú allt þetta?
Með hjálp mömmu. Fyrirgefðu að ég rusla alltaf út. Ég lofa að gera betur!
Fyrirgefðu að ég öskraði á þig og gerði þig leiðan.
Ég fyrirgef þér. Kannski þurfum við ekki Söru Hlykkhreistur til að skipta herberginu okkar?
Ég er mjög ánægur að þú sért systir mín.
Ég líka.
Myndskreyting: Katie McDee