„Vikuleg ritningarskemmtun,“ Barnavinur, janúar 2026, 41–44.
Kom, fylg mér
Vikuleg ritningarskemmtun
29. desember–4. janúar
Kynning á Gamla testamentinu
Gamla testamentið kennir um Jesú Krist
Söngur: „Segðu mér sögur um Jesú“ (Barnasöngbók, 36)
Ritningarvers: Jesaja 9:6
Verkefni: Við getum lært um Jesú Krist þegar við lesum Gamla testamentið. Farið á síðu 49 til að fara í ritningarleit saman. Eða veljið eitt af ritningarversunum til að lesa saman.
5.–11. janúar
Öll börn Guðs
Söngur: „Guðs barnið eitt ég er“ (Barnasöngbók, 2)
Ritningarvers: HDP Móse 1:4
Verkefni: Guð sagði við Móse: „Þú ert sonur minn“ (HDP Móse 1:4). Við erum öll börn himnesks föður! Hugsið um einhverja sem þarfnast áminningar um að þau séu börn Guðs. Syngið eða leikið fyrir þau sönginn „Guðs barnið eitt ég er“ (Barnasöngbókin, 2).
12.–18. janúar
1. Mósebók 1–2; HDP Móse 2–3; Abraham 4–5
Jesús Kristur skapaði jörðina
Söngur: „Himnafaðir elskar mig,“ (Barnasöngbókin, 16.)
Ritningarvers: HDP Móse 2:1
Verkefni: Jesús Kristur skapaði jörðina undir handleiðslu himnesks föður (sjá HDP Móse 2:1). Fyrir hvaða fallegu sköpunarverk eruð þið þakklát fyrir? Föndrið jarðarverkefnið á næstu síðu! Þið getið tekið upp fleiri eintök fyrir fjölskylduna. Klippið þau út og hengið þau upp einhvers staðar til að minna ykkur á að Guð skapaði jörðina fyrir ykkur, því hann elskar ykkur.
Sköpun jarðar
Himneskur faðir og Jesús Kristur sköpuðu himnana og jörðina og allt sem í þeim er. Notið liti, málið með fingrum eða rifnum pappír og litið land og sjó á jörðunni.
19.–25. janúar
1. Mósebók 3–4; HDP Móse 4–5
Taka góðar ákvarðanir
Söngur: „Velja rétta veginn“ (Barnasöngbókin, 84)
Ritningarvers: HDP Móse 4:3
Verkefni: Guð gaf okkur gjöf sjálfræðis (sjá HDP Móse 4:3). Sjálfræðið er eiginleikinn til að velja. Þið getið tekið góðar ákvarðanir með því að fylgja Jesú Kristi og þjóna öðrum. Þjónið einhverjum með fjölskyldu ykkar. Dragið síðan upp handarfar og klippið það út, skrifið um það sem þið gerðuð og sendið það til Barnavinar! Lærið meira á bls. 13.
Myndskreyting: Audrey Day