„Svo þú hefur látið skírast. Hvað tekur nú við?“ Barnavinur, janúar 2026, 36–37.
Svo þú hefur látið skírast. Hvað tekur nú við?
Hefur þú þegar látið skírast? Það er dásamlegt! Himneskur faðir og Jesús Kristur eru svo ánægðir með að þið ákváðuð að fylgja þeim.
Skírnin er bara eitt af fyrstu skrefunum á ferð ykkar til ótrúlegs sáttmálssambands við himneskan föður og frelsara ykkar. Hér eru nokkrir hlutir sem þið getið haldið áfram að gera eða byrjið að gera eftir að þið hafið verið skírð.
Hlusta á heilagan anda
Munið þið eftir því þegar þið meðtókuð gjöf heilags anda eftir skírn ykkar? Nú getur hann alltaf verið með ykkur þegar þið veljið rétt. Heilagur andi á oft samskipti við okkur með hugsunum og tilfinningum. Að hlusta á heilagan anda, mun hjálpa ykkur að taka góðar ákvarðanir og finna sanna gleði.
Hugsið um það: Hvenær hafið þið fundið fyrir heilögum anda? Það getur verið mikil upplifun eða lítil!
Iðrast
Þegar Jesús Kristur friðþægði fyrir syndir okkar, gerði hann okkur öllum mögulegt að iðrast. Iðrun merkir að hverfa frá röngu vali og snúa sér að himneskum föður og Jesú Kristi. Þeir eru svo glaðir þegar við veljum að iðrast, vegna þess að það hjálpar okkur að komast nær þeim.
Hugsið um það: Hvaða eitt getið þið gert sem hjálpar ykkur að snúa til himnesks föður og Jesú Krists?
Meðtaka sakramentið
Eftir skírnina ykkar, er sakramentið jafnvel enn sérstakara. Þegar þið nú meðtakið sakramentið, eruð þið að endurnýja sáttmálann sem þið gerðuð við skírnina, um að halda boðorðin og fylgja Jesú Kristi. Þegar þið haldið þessi loforð ekki fullkomlega, er sakramentið vikuleg áminning um að vegna Jesú Krists getum við iðrast og hlotið fyrirgefningu.
Hugsið um það: Hver er ein leið til að gera sakramentið sérstakt í þessari viku?
Búa sig undir musterið
Musterið er heilagt hús Guðs. Árið sem þið verðið 12 ára, getið þið farið í musterið og hjálpað öðrum með því að framkvæma skírnir fyrir hina dánu. Seinna getið þið sjálf gert fleiri sáttmála við himneskan föður. Það sem þið lærið í musterinu, mun hjálpa ykkur að verða líkari himneskum föður og Jesú Kristi!
Hugsið um það: Hvað er eitt af því sem þið getið gert núna til að búa ykkur undir að fara í musterið?
Myndskreyting: Alyssa Petersen