„Jesús var skírður,“ Barnavinur, janúar 2026, 6.
Jesús var skírður
Ég get líka látið skírast og staðfestast!
Að láta skírast, er fyrsta skrefið sem við tökum til að tilheyra kirkju Jesú Krists! Teiknið mynd af skírnardegi ykkar, hvort sem hann hefur þegar gerst eða þið hlakkið til hans.
Af hverju er skírn ykkur mikilvæg?
Af hverju er hún Jesú mikilvæg?
Að fylla skírnarfontinn
Við getum fylgt Jesú Kristi með því að láta skírast. Þegar við erum skírð og staðfest gerist tvennt mikilvægt: Við gerum sáttmála við himneskan föður og við hljótum sérstaka gjöf! Gerið verkefnið hér að neðan til að læra meira. Byrjið neðst á skírnarfontinum og svarið spurningunni. Litið síðan í vatnið fyrir það stig og færið ykkur upp á næsta stig.
-
Hve gömul þurfið þið að vera til að láta skírast? (Kenning og sáttmálar 68:27)
-
Hversu mikið af líkamanum fer undir vatnið? (3. Nefí 11:26)
-
Hverju lofið þið himneskum föður? (Mósía 18:10; Kenning og sáttmálar 20:37)
-
Hvaða gjöf hljótið þið eftir að þið eruð skírð? (Kenning og sáttmálar 33:15)
-
Hvað getið þið gert í hverri viku til að minnast sáttmálans sem þið gerðuð við skírn? (Kenning og sáttmálar 27:2)
Myndskreyting: Kelly Smith