„,Ég verð bráðum átta ára,‘“ Barnavinur, janúar 2026, 20–21.
„Ég verð bráðum átta ára“
Þegar dóttir mín var um sex ára, reyndum við eins mikið og við gátum að fá hana til að horfa á skírnir annarra barna. Eftir hverja skírn, töluðum við við við hana um það sem gerðist. Við hjálpuðum henni að skilja að þegar hún yrði nægilega gömul til að skírast, gæti hún greint rétt frá röngu. Eftir hverja skírn sagði hún: „Ég verð bráðum átta ára og verð líka skírð.“
Loks varð dóttir mín átta ára. Hún var skírð og staðfest. Hún hefur nú gjöf heilags anda. Við sögðum henni að ein besta leiðin til að hafa heilagan anda hjá sér væri að meðtaka sakramentið.
Þegar við meðtökum sakramentið, þá gerum við líka sáttmála um að hafa Jesú Krist ávallt í huga. Heilagur andi mun hjálpa ykkur að gera það sem Jesús kenndi og minna ykkur á það sem þið lærið um hann heima og í Barnafélaginu. Heilagur andi talar lágri, hljóðlátri röddu og mun hjálpa ykkur að skilja hvað er rétt og hvað rangt.
Dóttir mín elska nú sakramentið afar heitt! Það getið þið líka gert. Þegar þið meðtakið sakramentið í hverri viku og minnist Jesú Krists, munið þið finna betur fyrir heilögum anda og hann mun halda áfram að leiða ykkur. Þið munið ávallt geta munað eftir Jesú Kristi.
Sáttmálsskref
Litið hvert atriði til að fylgja því eftir er dóttir öldungs Ojediran býr sig undir að gera og halda skírnarsáttmála sinn.
Myndskreyting: Samantha Windley