Barnavinur
Adam og Eva
Barnavinur janúar 2026


„Adam og Eva,“ Barnavinur, janúar 2026, 46–48.

Kom, fylg mér

Adam og Eva

Adam og Eva í Aldingarðinum Eden með dýrum

Adam og Eva voru fyrstu börn himnesks föður sem lifðu á jörðinni. Þau dvöldu í aldingarðinum Eden.

Lífsins tré

Guð leyfði þeim að borða ávöxt allra trjáa, nema eins. Ef þau borðuðu af skilningstré góðs og ills, þá þyrftu þau að yfirgefa aldingarðinn og myndu deyja á endanum. Satan laug hins vegar að þeim. Hann sagði, að ef þau borðuðu ávöxtinn, myndu þau þekkja gott og illt, en myndu ekki deyja.

Eva tekur ávöxt af skilningstré góðs og ills.

Eva kaus að borða ávöxtinn.

Hendur Evu rétta ávöxtinn í hendur Adams

Hún gaf Adam síðan nokkuð af ávextinum. Hann kaus líka að eta hann.

Adam og Eva fela sig í runnum þegar himneskur faðir og Jesús Kristur birtast

Guð og Jesús Kristur vitjuðu þeirra, en Adam og Eva voru hrædd og földu sig. Guð spurði hvort þau hefðu etið ávöxt af trénu.

Adam og Eva í skinnkyrtlum á leið út úr aldingarðinum Eden

Adam og Eva sögðust hafa etið ávöxtinn. Þau þurftu nú að yfirgefa aldingarðinn Eden. En Guð hafði þó áætlun fyrir þau. Þau þekktu nú rétt frá röngu og gátu eignast börn.

Adam og Eva með fjölskyldu sinni

Adam og Eva lofuðu að hlýða boðorðum Guðs. Þau lærðu meira um son Guðs, Jesú Krist. Þau voru hamingjusöm því hann myndi hjálpa fjölskyldu þeirra að snúa aftur til Guðs.