Barnavinur
Samansafnarinn Thomas
Barnavinur janúar 2026


„Samansafnarinn Tómas,“ Barnavinur, janúar 2026, 17.

Samansafnarinn Thomas

Myndskreyting af veifandi dreng

Ég heiti Thomas og ég er samansafnari.

Á þessu ári lærum við í Barnafélaginu hvernig safna á saman. Leiðtogar okkar báðu okkur að safna fjölskyldu okkar saman til bænagjörðar og ritningarnáms. Þau vilja að við æfum samansöfnun, svo við getum vitað hvernig safna á saman núna og þegar við verðum fullorðin – í trúboði, skóla eða jafnvel þegar við erum ein. Þannig getum við alltaf safnast andlega saman með himneskum föður og Jesú Kristi og fundið frið í þeim.

Starf mitt er að safna saman fjölskyldu minni til morgunbæna. Ég spyr: „Viljið þið vera svo væn að biðja bæn með mér?“ Henry bróðir minn safnar okkur saman til kvöldbænar og ritningarnáms.

Einn laugardagsmorguninn lögðum við af stað snemma til að spila körfubolta. Á eftir fórum við að sinna erindum. Allt í einu mundi ég eftir nokkru og sagði: „Mamma, við gleymdum að safnast saman til að biðja.“ Hún sagði að við gætum safnast saman þegar við kæmum heim. Ég sagði þó: „Við þurfum að safnast saman og biðjast fyrir strax!“ Hún bað mig um að flytja bænina, en hafði augun opin því hún var að aka bílnum.

Mamma og pabbi segja mér og Henry hve þakklát þau eru fyrir að við söfnumst saman sem fjölskylda til bænar og ritningarnáms. Þau segja að litlar raddir okkar skipti miklu máli á heimili okkar. Þau segja okkur að fjölskylda okkar sé blessuð, vegna þess að við söfnumst saman.

Myndskreyting af fjölskyldu krjúpandi í bæn
PDF-síða

Myndskreyting: Augusto Zambonato