Barnavinur
Vandræði vinar
Barnavinur janúar 2026


„Vandræði vinar,“ Barnavinur, janúar 2026, 22–23.

Vandræði vinar

Af hverju ætti Matt að biðja fyrir Joseph? Það var Joseph sem var illkvittinn!

Sönn saga frá Bandaríkjunum.

Teikning af tveimur drengjum sem snúa bökum saman, annar horfir beint fram með krosslagða handleggi og hinn horfir aftur fyrir sig með höndina aftan á hálsinum

Matt sparkaði í stein er hann gekk heim. Hann áttaði sig ekki á þessu. Af hverju leið honum svona illa?

Hann hafði verið að hitta vin sinn Joseph. Joseph virtist hafa leiðst mikið og Matt hafði endað á því að fara fyrr heim en hann hafði ráðgert.

Kannski er ég að ímynda mér það, hugsaði Matt. Kannski er Joseph bara að eiga slæman dag.

Daginn eftir, þegar Matt kom í skólann, sá hann Joseph tala við hóp vina. Matt kallaði á hann og veifaði. Joseph leit í áttina til Matts en veifaði ekki til baka. Hann sneri sér aftur til vina sinna.

Joseph sá mig bara ekki, sagði Matt við sig sjálfan.

Í kennslustundinni, þegar kom að hópavinnu, gekk Matt til Josephs. „Viltu vera félagi minn?“ spurði Matt.

Það var eins og Joseph heyrði ekki einu sinni í honum. „Komdu, Mike,“ sagði Joseph við drenginn sem sat við hlið hans. „Förum að vinna þarna.“

Drengirnir tveir gengu í burtu. Matt fékk hnút í magann. Það var greinilega eitthvað að angra Joseph. Hvað gæti það verið?

Matt mundi ekki eftir neinu sem hann hefði gert til að gera Joseph reiðan við sig. Jú, stundum voru þeir í andstæðum liðum að spila hafnabolta í frímínútum. En þeir gáfu hvor öðrum alltaf fimmu á eftir. Af hverju var eins og Joseph veldi að vera í öllu í andstæðu liðinu?

Ég get allavega talað við Joseph í frímínútum, hugsaði Matt.

Í frímínútum hljóp Matt til að vera með hinum krökkunum á vellinum.

„Heyrðu, Joseph!“ kallaði Matt. „Má ég eiga við þig nokkur orð?“

„Leikurinn er að byrja,“ sagði Joseph.

„Allt í lagi, ég kem og spila á vellinum með þér og við getum talað þar saman,“ sagði Matt.

„Þú ert of seinn.“ Það er ekki pláss mín megin,“ sagði Joseph þegar hann hljóp til liðsins síns.

Matt fylgdist með þegar allir byrjuðu að spila. Það að hafa of margt fólk, hafði aldrei angrað Joseph áður. Allir voru ávallt velkomnir.

Matt fannst samt ekki að Joseph tæki sér fagnandi. Af hverju hagaði Joseph sér svona? Af hverju vildi hann ekki hafa hann með? Matt hafði ekki gert neitt rangt!

„Joseph er sá sem er að gera eitthvað rangt,“ sagði Matt við foreldra sína við kvöldverðinn. „Hann vill ekki einu sinni tala við mig og segja mér yfir hverju hann er reiður!“

„Það virðist erfitt,“ sagði mamma.

Matt fann heitt tár í augunum. „Mér líður eins og hann hafi bara hætt að vera vinur minn og ég veit ekki af hverju.“

„Ég er stoltur af þér fyrir að reyna að tala við hann um þetta,“ sagði pabbi. „Þú gætir kannski reynt að segja honum hvernig þér líður og að þú viljir hjálpa.“

Matt yppti öxlum. Matt var ekki viss um að Joseph myndi nokkuð hlusta á sig, eins og Joseph hafði hagað sér.

Mamma kreisti hendi Matts. Við munum einnig biðja fyrir þér og fyrir Joseph.

Um kvöldið, þegar Matt tók sig til í háttinn, hugsaði hann um það sem mamma og pabbi höfðu sagt. Hann hafði áður beðið fyrir vinum sínum, þegar þeir voru sorgmæddir eða áttu erfitt. En þetta var öðruvísi, ekki satt? Það var Joseph sem var vondur við hann.

Af hverju voru þá foreldrar Matts að biðja fyrir Joseph? Ætti hann að biðja fyrir Joseph líka?

Matt kraup við rúmið sitt. „Himneski faðir, það er erfitt að vera ekki reiður við Joseph,“ bað Matt. „Ég get séð að hann er reiður en hann hefur ekki sagt mér hvað er að angra hann.“

Matt gerði hlé. „Ég vil tala við hann en ég er ekki viss um að hann muni segja mér hvað er að. Hjálpaðu honum með það sem angrar hann. Og hvað sem gerist, hjálpaðu mér að vera góður við hann.

Þegar Matt baðst fyrir, fann hann frið hið innra. Hann vissi að himneskur faðir og Jesús Kristur væru bestu vinir hans. Þeir gætu hjálpað honum að elska Joseph, sama hvað Joseph ákvæði að gera. Þeir yrðu til staðar fyrir hann, jafnvel þótt Joseph yrði ekki áfram vinur hans.

Matt brosti. Það hafði verið góð hugmynd eftir allt saman að biðja fyrir Joseph.

Myndskreyting af dreng krjúpandi við rúmstokk til að biðja
PDF-síða

Myndskreyting: Mark Robison