„Vinir víða um heim,“ Barnavinur, janúar 2026, 14–15.
Vinir víða um heim
Barnafélagsbörn í Taoyuan, Taívan, heimsóttu Taipei-musterið í Taívan. Þau skynjuðu heilagleika og fegurð musterisins. Þau gerðu einnig klippimyndir af musterinu.
„Benjamín konungur,“ Levi og Jakob F., 7 og 10 ára, Rhine-Westphalia, Þýskalandi
„Eter 2:16–17,“ Wesley S., 10 ára, Norður-Karolínu, Bandaríkjunum
„Mannaveiðarar,“ Integrity W., 7 ára, Norður-Karolínu, Bandaríkjunum
„Fyrsta sýnin,“ Charlotte R., 10 ára, Georgíu, Bandaríkjunum
Everett og Emersyn S., 7 og 9 ára, Nebraska, Bandaríkjunum
Ég gaf nágrönnum mínum límonaði þegar þeir unnu hörðum höndum úti. Mér leið vel hið innra. Ég vissi að heilagur andi var með mér!
Rosalin W., 8 ára, Missouri, Bandaríkjunum
Ég hjálpaði gestum að klæðast hvítum skóhlífum á opnu húsi Okinawa-musterisins í Japan. Ég skynjaði heilagan anda þegar ég fór inn í musterið í opna húsinu.
Nico F., 9 ára, Okinawa-héraði, Japan
Ég og bróðir minn vorum að leika okkur á leikvellinum og komumst að því að drengur þar hafði tapað peningunum sínum. Ég vildi hjálpa honum, svo ég lét hann fá eitthvað af mínum peningum.
Nina M., 8 ára, Kaliningrad Oblast, Rússlandi
Það var deildarviðburður þar sem við skreyttum kápu af Mormónsbók til að gefa einhverjum sérstökum. Ég gaf vini mínum hana, svo hann gæti lært meira um Jesú Krist. Hann þakkaði mér fyrir hana og faðmaði mig innilega. Ég er glöð þegar ég get miðlað fólki sem ég elska fagnaðarerindinu.
Gabriela A., 6 ára, Los Lagos, Síle