Barnavinur
Nýtt upphaf
Barnavinur janúar 2026


„Nýtt upphaf,“ Barnavinur, janúar 2026, 38–39.

Nýtt upphaf

„Hvernig get ég haldist hreinn eftir að ég skírist?“

Sönn saga frá Frakklandi.

Teikning af ungum dreng og pabba hans haldast í hendur á gangi úti

Alexandre var að verða átta ára eftir örfáa daga! Hann var mjög spenntur, því hann og pabbi voru að ráðgera sérstakt afmælissnarl sem hann gæti borðað eftir skóla. Þegar trúboðarnir komu í kvöldmat, sagði Alexandre þeim fráljúffengu súkkulaðikökunum sem hann hafði valið.

„Við verðum með átta kökur og hver þeirra verður með einu kerti, í staðinn fyrir eina köku með átta kertum!“

Öldungur Lauener hló. „Það hljómar skemmtilega. Geymdu eitthvað fyrir mig!“

Eftir kvöldmat kenndu trúboðarnir lexíu um skírn. Öldungur Doyon sneri sér að Alexandre. „Þegar þú lætur skírast, velurðu að fylgja Jesú Kristi! Hann sagði Alexandre frá eigin skírn og miðlaði vitnisburði sínum. „Heilagur andi veitti mér mikla gleði, vegna þess að þann dag valdi ég að fylgja Jesú Kristi.“

Alexandre gat ekki beðið eftir skírnardeginum sínum!

Þegar hann fór í háttinn fyrir nóttina, reyndist honum erfitt að sofa. Honum líkaði hugmyndin að vera hreinn og nýr. Hvernig átti hann samt að haldast hreinn eftir skírn?

Næsta morgun gekk Alexandre með pabba sínum í skólann. „Þú hefur verið mjög þögull í morgun,“ sagði pabbi. „Hvað er málið?“

Alexandre andvarpaði. „Ég vildi að ég gæti skírst oftar en einu sinni.“

„Af hverju?“ spurði pabbi.

„Hvernig get ég annars haldist hreinn eftir að ég skírist?“ spurði Alexandre. „Ég gleymi alltaf hlutum, eins og að heilsa og þakka fullorðnum og vera þolinmóður við litla bróður minn. Ég veit að ég mun enn gera mistök. Maður færð bara eina skírn, svo ég verð aldrei svona hreinn aftur.“

Pabbi stoppaði og mætti augum Alexandre. „Vá. Það er líklega svolítið yfirþyrmandi. Manstu þegar við töluðum um að gefa loforð við skírn?“

Alexandre kinkaði kolli. „Ég held það“

„Þegar þú skírist, gerir þú sáttmála við himneskan föður. Þú lofar að halda boðorð hans og fylgja Jesú Kristi. Eftir það, getur þú minnst Jesú í hvert sinn sem þú meðtekur sakramentið og hvernig hann getur hjálpað þér að iðrast.“

Augu Alexandre stækkuðu. „Svo mér getur fundist ég vera jafn hrein og þegar ég skírist?“

„Einmitt,“ sagði pabbi. „Himneskur faðir veit að þú ert ekki fullkomin og að stundum muntu taka rangar ákvarðanir. Þegar þú syndgar, þá geturðu iðrast og haldið áfram að reyna að fylgja Jesú. Hljómar þetta eins og eitthvað sem þú getur gert?“

Alexandre brosti. „Já! Ég held ég geti það.“

Þegar afmælisdagur Alexandre rann upp, bauð fjölskylda hans upp á afmælissnarlið hans eftir skólann. Það var gómsætt! Alexandre leið einkar vel hið innra þegar hann steig upp úr vatninu. Hann hafði lofað að fylgja Jesú Kristi og það var undravert!

Drengur að borða súkkulaðikökur

Í þeirri viku reyndi Alexandre sitt besta til að halda nýju sáttmálana sína og vera góður við litla bróður sinn. Þegar næsti sunnudagur rann hins vegar upp, varð hann þó örlítið vonsvikinn. Honum fannst eins og hann hefði getað tekið betri ákvarðanir þessa vikuna.

Þegar verið var að útdeila sakramentinu, krosslagði Alexandre hendur sínar og laut höfði. Hann bað himneskan föður hljóðlega að hjálpa sér að gera betur í næstu viku. Hann hugsaði um það hversu heitt Jesús elskaði sig og hvernig hann vildi verða líkari honum.

Þegar Alexandre tók brauðmola úr sakramentisbakkanum, fann hann hlýju og frið hið innra. Honum leið alveg eins og honum leið á skírnardaginn sinn! Pabbi setti handlegg sinn yfir öxl Alexandre og brosti til hans.

Í dag var upphaf nýrrar viku og Alexandre ætlaði að gera sitt besta – með hjálp himnesks föður.

Drengur meðtekur sakramentið
Alt text

Myndskreyting: Toby Newsome