Barnavinur
Sæluáætlunin og þið!
Barnavinur janúar 2026


„Sæluáætlunin og þið!“ Barnavinur, janúar 2026, 24–25.

Sæluáætlunin og þið!

Himneskur faðir gerði áætlun fyrir öll börn sín sem kölluð er sæluáætlunin. Þið eigið þátt í þeirri áætlun!

Sköpunin

Himneskur faðir og Jesús Kristur sköpuðu himin og jörð og allt sem í þeim er.

Fallið

Adam og Eva kusu að eta ávöxtinn af skilningstré góðs og ills. Af þeim sökum voru þau aðskilin frá Guði, þekktu rétt frá röngu og gátu eignast fjölskyldu. Þau voru fyrsta fjölskyldan á jörðunni.

Friðþæging Jesú Krists

Jesús Kristur kom til jarðar. Hann skynjaði allan sársauka okkar og galt fyrir syndir okkar. Hann dó og lifði aftur. Vegna hans, getum við iðrast og lifað með fjölskyldu okkar og himneskum föður aftur einhvern daginn.

Lífið á jörðinni

Við erum öll fædd hér á jörðu til að hljóta líkama og læra og vaxa. Við getum fylgt Jesú Kristi með því að halda boðorðin og þjóna öðrum.

Getið þið fundið þessa hluti á myndinni?

PDF-síða

Myndskreyting: Maddie Baker