2025
Taka á sig nafn Jesú Krists
Til styrktar ungmennum, nóvember 2025


Síðdegishluti sunnudags

Taka á sig nafn Jesú Krists

Útdráttur

alt text

Nígería

Hala niður PDF-skjali

Við [getum] séð að minnsta kosti fimm hliðstæður við ferlið þar sem við tökum á okkur nafn Jesú Krists. …

Fyrsta hliðstæðan er samsömun. … Þegar við tökum á okkur nafn Jesú Krists, tengjum við nafn okkar hans nafni. Við finnum til samsömunar með honum. …

Nátengt samsvörun er önnur hliðstæða – hafa í huga. … Að meðtaka sakramentið í hverri viku, hjálpar okkur að hafa Jesú Krist í huga alla vikuna. …

… Jafnvel þegar við erum upptekin við önnur málefni, höldum við áfram að hafa hann í huga, rétt eins og við munum nöfn okkar sjálfra, burtséð frá öðru sem við einbeitum okkur að.

Framhald þess að hafa í huga það sem frelsarinn hefur gert fyrir okkur, er þriðja hliðstæðan – að líkja eftir. … Því meira sem við samsömum okkur við Jesú Krist og höfum hann í huga, því meira viljum við vera eins og hann. …

Að líkja eftir Jesú Kristi, leiðir okkur að fjórðu hliðstæðunni – samstilla okkur tilgangi hans. Við sameinumst honum í verki hans. …

… Að tileinka sér þetta fernt, leiðir okkur að fimmtu hliðstæðunni – krafteflingu. Við höfum aðgang að krafti og blessunum Guðs í lífi okkar. …

Þegar við gerum fleiri sáttmála við Guð, tökum við á okkur nafn Jesú Krists enn frekar. Þar af leiðandi blessar Guð okkur í ríkari mæli með krafti sínum. …

… Komið til okkar himneska föður. Takið á ykkur nafn Jesú Krists. … Þið verðið upphafnir erfingjar í ríki föður okkar á himnum, samarfar frumburðar hans, okkar ástkæra frelsara og lausnara.