Síðdegishluti laugardags
Enginn situr einn
Útdráttur
Suður-Afríka
Eistland
Í dæmisögunni um miskunnsama Samverjann býður Jesús okkur að koma til hvers annars og til hans í gistihúsi hans – kirkju hans. …
Andi þess að það sé „rúm … í gistihúsi“ felur í sér: „Enginn situr einn.“ Þegar þið komið í kirkju og þið sjáið einhvern einan, viljið þið þá endilega heilsa og sitja hjá honum eða henni? …
„Enginn situr einn“ þýðir líka að enginn situr einn tilfinningalega eða andlega. Ég fór eitt sinn með niðurbrotnum föður að heimsækja son hans. Mörgum árum áður hafði sonurinn verið spenntur yfir því að verða nýr djákni. Tilefnið kallaði á að fjölskylda hans keypti fyrir hann nýja skó í fyrsta sinn.
En í kirkjunni hlógu djáknarnir að honum og skónum hans. Skórnir hans voru nýir en ekki í tísku. Niðurlægður og sár, sagði ungi djákninn að hann myndi aldrei fara aftur í kirkju. Ég er enn miður mín vegna hans og fjölskyldu hans. …
Í hans endurreistu kirkju erum við öll betri þegar enginn situr einn. Við skulum ekki einfaldlega þola eða umbera. Við skulum einlæglega taka vel á móti og viðurkenna, þjóna og elska. …
Í dag eru margir einmana og einangraðir. …
Það eru margar ástæður fyrir því að okkur finnst við ekki passa í kirkjuna – að í óeiginlegri merkingu, þá sitjum við ein. …
Mósía 18:21 býður okkur að tengja hjörtu okkar böndum elsku. Ég býð okkur til að hafa minni áhyggjur, dæma minna, gera minni kröfur til annarra – og að vera minna óvægin við okkur sjálf þegar þörf krefur. …
Sáttmálsaðild dýpkar er við komum til hvers annars og til Drottins í gistihúsi hans. Drottinn blessar okkur öll þegar enginn situr einn.