Morgunhluti sunnudags
Beina sjónum til Guðs og lifa
Útdráttur
Kalifornía
Bólivía
Ráðstefnuhöllin, Bandaríkjunum
Madagaskar
Að sjálfsögðu hefur ábendingin um að „beina sjónum … til Guðs og lifa“ merkingu fyrir okkur, ekki aðeins í eilífðinni, heldur gerir hún líka gæfumuninn hvað varðar gerð og gæði jarðnesks lífs okkar. …
Ekkert loforð er endurtekið oftar í ritningum Mormónsbókar en þetta: „Sem þér haldið boðorð mín, svo mun yður vegna vel á þessari grund, og svo sem þér haldið ekki boðorð mín, svo munuð þér útilokast úr návist minni.“ … Að „vegna vel“ var að njóta leiðsagnar og blessana himins í lífi þeirra. … Að „vegna vel“ felur í sér þá getu að geta risið ofar erfiðleikum og raunum. …
… Boðorð og leiðsögn Guðs er að finna í ritningunum og orðum þjóna hans. Reglurnar og hugmyndirnar sem útlistaðar eru í „Fjölskyldan: Yfirlýsing til heimsins“ eru tilvalið dæmi um það. Annað dæmi er leiðsögnin í bæklingnum Til styrktar ungmennum. …
Það virðist enginn endir vera á þeim ólíku uppsprettum sem fólk leitar til í leit að merkingu, hamingju og hjálp. Flestir „horfa yfir markið.“ … Þegar við beinum sjónum til Guðs, getum við fundið frið í erfiðleikum og trú okkar getur haldið áfram að styrkjast, jafnvel á tímum efasemda og andlegra áskorana. Við getum hlotið styrk mitt í andstöðu og einangrun. Við getum sætt hugsjónina við núverandi veruleika. …
Að beina sjónum til Guðs, merkir að hann er ekki aðeins eitt af forgangsatriðum okkar; það merkir öllu heldur að hann sé okkar æðsta forgangasatriði.