2025
Prýdd dyggð hófsemi
Til styrktar ungmennum, nóvember 2025


Morgunhluti sunnudags

Prýdd dyggð hófsemi

Útdráttur

alt text

Eistland

Síle

Hala niður PDF-skjali

Drottinn kunngjörði: …

„Og enginn getur aðstoðað við þetta verk, nema hann sé auðmjúkur og fullur elsku, eigi trú, von og kærleika og sé hófsamur í öllu, hverju því sem honum verður treyst fyrir.“

Leiðsögn frelsarans, sem skráð er í þessari helgu opinberun, minnir okkur á að hófsemi er nauðsynleg styrking fyrir sterka undirstöðu í Jesú Kristi. …

Meðal þeirra eiginleika sem prýða sanna lærisveina Krists stendur hófsemin upp úr sem endurspeglun sjálfs frelsarans, dýrmætur ávöxtur andans, aðgengilegur öllum sem opna sig fyrir guðlegum áhrifum. …

Lærisveinar Krists, sem keppa að því að tileinka sér þennan kristilega eiginleika, verða sífellt auðmýkri og uppfullir af elsku. …

… Fagnaðarerindi Jesú Krists býður okkur að iðka þessa dyggð, sérstaklega á tímum áskorunar, því það er einmitt við þau tækifæri sem hinn sanni maður kemur í ljós. …

Þjónusta frelsarans á jörðu einkenndist af dyggð hófsemi á öllum sviðum persónuleika hans. …

Jesús Kristur, hinn æðsti allra, þjáðist fyrir okkur, þar til honum blæddi úr hverri svitaholu, samt lét hann aldrei reiði brenna hjarta sitt, né sluppu ágeng, móðgandi eða vanhelg orð af vörum hans, jafnvel mitt í slíkum þrengingum. …

… Þegar við keppum að því af trú og kostgæfni að vefa hófsemi í orð okkar og verk, ber ég vitni um að við munum styrkja og festa líf okkar betur við hina öruggu undirstöðu lausnara okkar.