2025
Þau eru sínir eigin dómarar
Til styrktar ungmennum, nóvember 2025


Sunnudagssíðdegi

Þau eru sínir eigin dómarar

Útdráttur

alt text

USA

Hala niður PDF-skjali

Megin tilgangur sköpunarinnar og okkar dauðlegu tilveru, er að sjá okkur fyrir tækifærinu til að framkvæma og verða það sem Drottinn býður okkur að verða. …

Við höfum ekki verið blessuð með siðferðislegu sjálfræði til að gera hvaðeina sem við viljum, hvenær sem okkur hentar. Við höfum frekar, samkvæmt áætlun föðurins, hlotið siðferðislegt sjálfræði til að leita eftir og breyta í samræmi við eilífan sannleika. …

Dallin H. Oaks forseti hefur lagt áherslu á að fagnaðarerindi Jesú Krists bjóði okkur bæði að vita eitthvað og að verða eitthvað með réttlátri iðkun siðferðilegs sjálfræðis. …

Við [samt getum við] hvorki, né munum frelsast einungis fyrir eigin verk og þrár. „Að afloknu öllu, sem vér getum gjört,“ erum við aðeins færð til sáttar við Guð fyrir þá miskunn og náð sem fengin er með hinni óendanlegu og eilífu friðþægingu frelsarans. …

Mörg okkar kunna að vænta þess að koma okkar fram fyrir dómgrindur hins eilífa dómara verði líkt og málsmeðferð fyrir veraldlegum dómstólum. Að dómari verði í forsæti. Að sönnunargögn verði lögð fram. Að úrskurður verði kveðinn upp. Og að líklega verðum við óviss og óttaslegin, þar til við vitum hver niðurstaðan verður. En ég tel slíka lýsingu vera ónákvæma. …

Að óttast Drottin er ekki að kvíða því að koma fram fyrir hann til dóms. Það er fremur að sjá líf okkar í hnotskurn og að lokum viðurkenna „hlutina eins og þeir eru í raun og eins og þeir í raun munu verða.“ …

Þegar allt kemur til alls, þá erum við okkar eigin dómarar. Enginn þarf að segja okkur hvert við eigum að fara. Í návist Drottins munum við viðurkenna það sem við höfum valið að verða í jarðlífinu og vita sjálf hvar okkur ber að vera í eilífðinni.