2025
Hvetja hvert annað áfram
Til styrktar ungmennum, nóvember 2025


Kvöldhluti laugardags

Hvetja hvert annað áfram

Útdráttur

alt text

Ekvador

Nýja-Sjáland

Hala niður PDF-skjali

Við þörfnumst hvers annars. Guðlegur styrkur er afleiðing einingar, þess vegna einsetur Satan sér að sundra okkur.

Því miður er stundum erfitt fyrir sum okkar að fara í kirkju af ýmsum ástæðum. …

Upplifun okkar í kirkjunni er ætlað að framkalla mikilvæg tengsl við Drottin og hvert annað, sem eru svo nauðsynleg fyrir líkamlega, tilfinningalega og andlega velferð okkar. …

Kristilegur kærleikur og umhyggja er æðri og heilagri. …

… Við tilheyrum öll fjölskyldu Guðs og hann elskar öll börn sín. Hann þráir að börn hans elski hann og einnig hvert annað.

Líf frelsarans var fordæmi um að elska, safna saman og upplyfta, jafnvel þeim sem samfélagið hafði dæmt útskúfaða og óhreina. Hann er fordæmi sem okkur er boðið að fylgja. …

Sá tími mun koma í lífi okkar allra að það verðum við sem þurfum á hjálp og hvatningu að halda. Við skulum einsetja okkur núna að gera það alltaf fyrir hvert annað. …

Hvert og eitt ykkar sem kunnið að finnast þið vera langt á eftir í þessari keppni lífsins, þessari ferð jarðlífsins, haldið endilega áfram. Einungis frelsarinn getur fyllilega dæmt um stöðu ykkar á þessari stundu og hann er samúðarfullur og réttvís. …

Hafið augun á frelsaranum. Hann er járnstöngin ykkar. Sleppið honum ekki. Ég ber vitni um að hann lifir og að þið getið treyst honum. Ég ber líka vitni um að hann hvetur ykkur áfram.