Kvöldhluti laugardags
Hin friðþægjandi elska Jesú Krists
Útdráttur
Talitha Cumi, eftir Evu Timothy
Ef þið hafið drýgt alvarlegar syndir og eruð í iðrunarferlinu eða þráið að iðrast fyllilega og finna hina ólýsanlegu gleði fyrirgefningar, vitið þá að þetta kraftaverk bíður ykkar. …
Að snúa frá synd, snúa sér til Guðs og styrkja trú sína á Jesú Krist, er dásamleg byrjun. Að lúta vilja Guðs af auðmýkt, felur í sér að játa alvarlegar syndir fyrir biskupi ykkar eða greinarforseta, en fullnaðarfyrirgefning ykkar kemur frá frelsaranum. …
Þrá til að snúa sannlega aftur til Guðs, felst í staðfestu um að vera algjörlega heiðarlegur við himneskan föður, sjálfan sig, við þá sem skaðast hafa og prestdæmisleiðtoga ykkar. …
Þrá ykkar fær ykkur til að vilja laga það sem þið hafið brotið. Þið biðjið þess samt einlæglega, er þið gerið ykkur ljóst að sumt er ekki á ykkar valdi að bæta, að Drottinn, fyrir náð sína, muni hjálpa við að lækna þau sem hafa verið særð vegna gjörða ykkar. …
Þegar þið leitið fyrirgefningar Drottins, verið þá þolinmóð er þið bíðið eftir fullri velþóknun hans. …
Ykkur, sem hafið verið særð á svo óréttmætan hátt vegna alvarlegra synda annarra, þrái ég að miðla kærleika og samúð frelsarans, huggun hans og friði.
… Ég fullvissa ykkur algjörlega um að frelsarinn þekkir og elskar ykkur. Leitið til hans. Hann er huggun ykkar og styrkur; hann mun senda engla sína ykkur til stuðnings.